Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 160

Dags. 28.7.2010

Miðvikudaginn 28. júlí 2010 kom byggðarráð Borgarbyggðar saman til fundar kl. 16:00 að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Mætt voru:

           Aðalfulltrúar:             Bjarki Þorsteinsson

                                           Ingibjörg Daníelsdóttir

                                           Finnbogi Leifsson

           Áheyrnarfulltrúi:        Geirlaug Jóhannsdóttir

           Sveitarstjóri:             Páll S. Brynjarsson

           Skrifstofustjóri:          Eiríkur Ólafsson sem ritaði fundargerð

 

Eftirfarandi var tekið fyrir:

 

1.         Orkuveita Reykjavíkur – skipan rýnihóps

Framlagt bréf dagsett 13.07. 2010 frá Hjörleifi Kvaran forstjóra OR þar sem óskað er eftir að Borgarbyggð tilnefni fulltrúa í rýnihóp um úttekt og greiningu á stöðu fyrirtækisins.

Samþykkt að tilnefna Eirík Ólafsson skrifstofustjóra fulltrúa Borgarbyggðar í hópinn.

 

2.         Menntaborg

Framlagt minnisblað sveitarstjóra varðandi ráðningu í starf húsvarðar við mennta- og menningarhúsið í Borgarnesi.

Samþykkt var að fela sveitarstjóra að auglýsa eftir húsverði í hlutastarf.

 

3.         Erindi frá Gatnamótum ehf.

Framlagt bréf dagsett 15.07. 2010 frá Gatnamótum ehf. vegna lóðamála.

Samþykkt að vísa erindinu til umsagnar umhverfis- og skipulagsnefndar og sveitarstjóra falið að boða bréfritara til fundar. 

 

4.         Flugvöllur á Kaldármelum

Framlagt bréf dagsett 09.07. 2010 frá Isavia vegna flugvallarins á Kaldármelum.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið.  

 

Á fundinn mætti Ingi Tryggvason lögfræðingur Borgarbyggðar.

 

5.         Fjallskilamál

Framlagt bréf dagsett 15.07. 2010 frá Hermanni Sveinbjörnssyni f.h. landeigenda að Kletti í Reykholtsdal vegna álagningar fjallskilagjalda.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að svara bréfritara.

 

6.         Útboð á skólaakstri

Rætt um útboð á skólaakstri við grunnskólana í Borgarbyggð sem sveitarstjórn vísað til byggðarráðs.

Lögð voru fram minnisblöð tveggja lögfræðinga varðandi gildi tilboða í leið 3.

Í báðum minnisblöðunum kemur fram að tilboð lægstbjóðanda í leiðina er ófullnægjandi og er því ógilt, en annað tilboð sem barst í sömu leið er með það litlum ágöllum að ekki er hægt að telja það ógilt.  Því samþykkti byggðarráð að breyta ákvörðun frá síðasta fundi varðandi málið og var sveitarstjóra falið að ganga til samninga við Sturla Stefánsson um akstur á leiðinni.

Fram kom að Dagleið ehf hefur fallið frá tilboði sínu í þær leiðir sem fyrirtækið átti lægstu tilboð í, þar sem tilboðið var með fyrirvara. 

Samþykkt var að ganga til samninga við þá sem áttu næstlægstu tilboð í viðkomandi leiðir.

 

7.         Krókur í Norðurárdal

Framlagt minnisblað vegna ágreinings um eignarhald á spildu úr jörðinni Krókur í Norðurárdal. 

Samþykkt að fela lögfræðingi Borgarbyggðar að höfða mál til staðfestingar á eignarhaldi Borgarbyggðar á svokölluðum afréttarhluta Króks.

 

8.         Grímshúsið

Rætt um tilboð Borgarbyggðar í Grímshúsið í Borgarnesi og sölu á hluta gamla Mjólkusamlagsins í Borgarnesi.

Sveitarstjóra var falið að skoða málið frekar.

 

9.         Skúlagata 7

Framlagt bréf frá Ragnari Baldurssyni hrl. dags. 02.07.'10 f.h. eigenda fasteignarinnar að Skúlagötu 7 í Borgarnesi varðandi matsgerð á tjóni vegna breytinga á skipulagi.

Samþykkt að fela lögmanni að fara fram á yfirmat .

 

Ingi vék af fundi.

 

10.       Skólahreysti 2010

Framlagt bréf frá Andrési Guðmundssyni f.h. Skólahreysti þar sem óskað er stuðnings að upphæð kr.50.000 vegna keppninnar árið 2010.

Samþykkt með 2 atkv að verða ekki við beiðninni.  FL sat hjá við atkvæðagreiðslu.

 

11.       Sorphirða á Bifröst

Framlagt bréf dagsett 09.07. 2010 frá Birni L. Bergssyni hrl. f.h. Vikrafells á Bifröst vegna meintra ofgreiddra sorphirðugjalda.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að óska eftir fundi með fulltrúum Vikrafells ehf. um málið. 

 

12.       Stofnun Vígdísar Finnbogadóttir

Framlagt bréf dagsett 10.07. 2010 frá Auði Hauksdóttur f.h. Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur þar sem óskað er eftir fjárstuðningi við uppbyggingu húsnæðis fyrir starfsemi stofnunarinnar.  

Byggðarráð telur sér ekki fært að verða við beiðninni.   

 

13.       Slíðdalstjörn

Framlagt erindi frá Guðmundi Finnssyni dags. 20.07.'10 þar sem hann óskar eftir að falla frá leigusamningi um Slíðdalstjörn.

Samþykkt að falla frá leigusamningnum fyrir árið 2010.   

 

14.       Unglingalandsmót 2010

Rætt um undirbúning fyrir unglingalandsmótið í Borgarnesi

 

15.       Önnur mál

a.         Framlagt yfirlit um álagningarhlutföll sveitarfélaga á fasteignaskatti.

b.         Bréf frá Skipulagsstofnun vegna samráðsfundar sveitarfélaga og Skipulagsstofnunar sem fram fer í Reykholti í september n.k.

 

 

Fleira ekki gert.

Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.

 

Fundi slitið kl.  18,20.

 

 



Til baka