Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 221

Dags. 9.2.2012

Fimmtudaginn 9. febrúar  2012 kom byggðarráð Borgarbyggðar saman til fundar  kl. 8:00 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Mætt voru:

         Aðalfulltrúar:             Bjarki Þorsteinsson

                                         Ingibjörg Daníelsdóttir

                                         Geirlaug Jóhannsdóttir

         Áheyrnarfulltrúi:        Sigríður G. Bjarnadóttir

         Sveitarstjóri:             Páll S. Brynjarsson

         Skrifstofustjóri:          Eiríkur Ólafsson sem ritaði fundargerð

 

Eftirfarandi var tekið fyrir:

 

1.         Faxaflóahafnir

Sveitarstjóri kynnti tilboð frá Reykjavíkurborg um kaup á hluta af  eignarhluta Borgarbyggðar í Faxaflóahöfnum.  Söluvirði hlutarins eru 75 milljónir og við það lækkar eignarhlutur Borgarbyggðar í fyrirtækinu um 0,7044%. 

Byggðarráð samþykkti að taka tilboðinu.

 

2.         Umsögn um samgönguáætlun

Framlögð erindi frá nefndarsviði Alþingis þar sem óskað er umsagnar um þingályktunar- tillögur um fjögurra ára samgönguáætlun sem og tólf ára samgönguáætlun. 

Samþykkt að vísa tillögunum til umsagnar umhverfis- og skipulagsnefndar.

 

3.         Þriggja ára áætlun

Rætt um þriggja ára áætlun Borgarbyggðar 2013 - 2015.

 

4.         Húsaleigusamningar fyrir Slökkvilið Borgarbyggðar

Framlagður tölvupóstur frá forstöðumanni umhverfis- og skipulagssviðs þar sem óskað er eftir heimild til að framlengja húsaleigusamninga vegna slökkvistöðva á Hvanneyri og Bifröst.

Samþykkt að heimila framlengingu á samningunum.

 

5.         Álagning fasteignaskatts á hesthús í þéttbýli

Á fundinn mætti Stefán Logi Haraldsson formaður hestamannafélagsins Skugga til viðræðna um breytingu á álagningu fasteignaskatta á hesthús í Borgarbyggð.

Stefán afhenti undirskriftalista frá hesthúseigendum í Borgarnesi þar sem hækkun fasteignaskattsins er mótmælt og skorað á sveitarstjórn að endurskoða þessa ákvörðun.

Framlagt var bréf frá Guðmundi Arasyni dags. 02.02.'12 þar sem mótmælt er hækkun á álagningu fasteignaskatts á hesthús. 

 

6.         Vatnsveita Bæjarsveitar

Rætt um samninga við landeiganda um vatnstöku fyrir Vatnsveitu Bæjarsveitar.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að kynna drög að samning fyrir hlutaðeigandi aðilum. 

 

7.         Refaveiðar

Framlagt minnisblað frá skrifstofustjóra varðandi refaveiðar í Borgarbyggð.

Samþykkt að vísa málinu til umfjöllunar í landbúnaðarnefnd.

 

Sigríður vék af fundi.

 

8.         Umsögn um stofnun lögbýlis

Framlögð beiðni eigenda jarðarinnar Stafholtsveggja dags. 29.01.'12 um umsögn sveitarstjórnar á að stofna verði lögbýli á jörðinni.

Samþykkt að óska eftir umsögn Búnaðarsamtaka Vesturlands um erindið.

 

9.         Menntaskóli Borgarfjarðar

Rætt um málefni Menntaskóla Borgarfjarðar.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að skrifa Menntamálaráðuneytinu varðandi greiðslur ráðuneytisins á húsnæðiskostnaði skólans.

 

 

Fleira ekki gert.

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl.  11,20.



Til baka