Húsnefnd Lindartungu , fundur nr. 2
Dags. 14.10.2007
Fundargerð húsráðs Lindartungu haldin 14.okt.
Mætt Ólafur Sigvaldason, Sigurður Helgason, Kristján Magnússon (ritari) Kristín Björnsdóttir (fulltrúi kvenfélagsins) og Helga Jóhannsdóttir (húsvörður).
- Ólafur setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna og bauð nýjan húsvörð velkominn til starfa.
- Fjárhagsáætlun, farið aðeins yfir starfsemi síðasta sumars.
Fjárhagsáætlun 2008
Húsaleiga 600.000 kr
Laun 400.000 kr
Launatengd gj. 60.000 kr
Rafmagn 500.000 kr
Hreinlætisvörur 40.000 kr
Sími 25.000 kr
Akstur 50.000 kr
Tryggingar 40.000 kr
Viðhald búnaðar 300.000 kr
Ófyrirséð 100.000 kr
Samtals gjöld 1.515.000 kr
Samtals tekjur 600.000 kr
Gjöld umfram tekjur 915.000 kr
Viðhald búnaðar: skipta um vaska og blöndunartæki á karlaklósetti. Endurnýja þarf dýnur c.a. 20 stk. Skipta þarf um dyramottu 3 stk. Setja þarf upp kolagrill og klára framkvæmdir í eldhúsi (efnið er til). Setja þarf upp bakaraofn og tengja hann (hann er til)
Viðhald hússins: Skipta verður um þak og þakkanta á húsinu, búið er að kaupa járn og pappa. Skipta verður um hurð í kjallara sem er skilgreindur sem neyðarútgangur (ekki hægt að ganga um hann í dag). Setja þarf upp handrið við aðalinngang og aðgengi fyrir fatlaða ( skilyrði vegna starfsleyfis).
- Gjaldskrá.
Svefnpokapláss pr. mann. nótt 1.800 kr
Svefnpokapláss (fasta gestir afsláttur) 1.600 kr
Fundir 7.000 kr
Veislur 25.000 kr
Helgarleiga (ættarmót) 60.000 kr
Gjaldskráin tekur gildi 1.janúar 2008.
- Önnur mál.
Kristján kom með þá tillögu að sett verði upp félagsmiðstöð í Lindartungu, fundarmenn tóku vel í hugmyndina og vildu fara að vinna í málinu í samvinnu við foreldrafélag Laugargerðiskóla.
Ólafur Sigvaldason
Sigurður Helgason
Kristján Magnússon
Kristín Björnsdóttir
Helga Jóhannsdóttir
Til baka