Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Landbúnaðarnefnd, fundur nr. 4

Dags. 13.11.2006

Mánudaginn 13. nóvember 2006 kom landbúnaðarnefnd saman til fundar kl. 13.30 að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

Mætt: Kristján Magnússon, Sigurður Helgason, Guðrún Fjeldsted og Sveinbjörn Eyjólfsson. Auk þeirra sátu fundinn dreifbýlisfulltrúar Sigurjón Jóhannesson og Þórvör Embla Guðmundsdóttir sem ritaði fundargerð.

 

Dagskrá:

 

  1. Fjárhagsáætlun:Dreifbýlisfulltrúi kynnti fjárhagsáætlun fyrir málaflokkinn, en vinna við hana er á lokastigi. Fram kom að fjármagn vantar til að laga girðingar við Oddstaðaafrétt en um það mun komið erindi til byggðaráðs. Þá vantar inn í áætlun tekjulið vegna fjallskila í Kolbeinsstaðahreppi og áætlun hefur ekki borist frá fjallskilasjóði Norðurárdals. Eftir nokkrar umræður og breytingar var áætlunin samþykkt og henni vísað áfram.

Þá lýsir landbúnaðarnefnd yfir sérstökum vonbrigðum með að nefndin fjalli ekki um fjárhagsáætlun vegna eyðingar á ref og mink í Borgarbyggð.

 

  1. Bréf jarðeigenda í Þverárhlíð:Frestað

 

  1. Erindisbréf nefndarinnar:  Nefndin leggur til að í þriðju grein erindisbréfs komi nýr liður (8) og verði svohljóðandi: “Að hafa umsjón og eftirlit með landi sveitarfélagsins sem nýtt er til landbúnaðar og beitar”.

Einnig er lagt til bætt verði inn í starfslýsingu dreifbýlisfulltrúa að þeir hafi eftirlit með löndum sveitarfélgsins, nýtingu þeirra og beit.

Þá lýsir nefndin enn og aftur yfir vonbrigðum sínum með að eyðing vargs falli ekki undir starfsvið landbúnaðarnefndar. Eftirfarandi lagt fram og samþykkt einróma: “Landbúnaðarnefnd lýsir enn áhuga á að hafa umsjón með fækkun og eyðingu vargs í sveitarfélaginu. Nefndin lýsir áhuga á að skoða málaflokkinn sérstaklega og hvort hagræða megi og einfalda framkvæmdina. Á meðan sú vinna stendur yfir telur nefndin að framkvæmd og fjárveiting eigi að vera óbreytt.” 

  1. Fyrirsvarsmenn jarða:Sigurjón sagði frá því að fulltrúi sýslumanns telur það hlutverk sveitarfélagins að finna út hverjir eru fyrirsvarsmenn jarða þar sem eigendur eru fleiri en þrír. Dreifbýlisfulltrúar vinna málið áfram.

 

  1. Smölun:Sigurjón segir að enn sé fé á Vesturárdal, Norðurárdalsafrétti. Þetta fé þarf að sækja hið fyrsta. Rætt um Bjarnardal. Þar sem enginn nýtir dalinn lengur til beitar ætti að íhuga að segja upp leigusamningi.

 

  1. Hundahreinsun:Nokkuð skiptar skoðanir um framkvæmd hundahreinsunar og einnig hver eigi að bera kostnaðinn. Fram kom að enn vantar skýrslur frá dýralæknum og vinna þarf að skráningu allra hunda í sveitarfélaginu en nokkuð mikið vantar upp á að allir hundar séu skráðir.

 

  1. Önnur mál:Aðstaða í réttum. Nefndarmenn vilja að athugað verði að hvort ekki sé unnt að koma upp aðstöðu til að taka fé á bíla við réttirnar. 

                                           Fundi slitið kl. 15:45



Til baka