Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur nr. 22

Dags. 11.6.2012

Fundargerð

 

22. fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar Borgarbyggðar var haldinn í Ráðhúsi Borgarbyggðar, mánudaginn 11. júní 2012 kl. 08:30.

Mætt voru: Ragnar Frank Kristjánsson, Þór Þorsteinsson, Kolbeinn Magnússon, Sigurður Guðmundsson, Dagbjartur Ingvar Arilíusson, Jökull Helgason forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs og Björg Gunnarsdóttir umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi.

 

Dagskrá:

 

 

Umhverfismál

1.

Bjarnhólar, Krafa um úrbætur 

 

Mál nr. BN120128

Skjalnr.

701002-2880 Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík

 

Framlagt bréf Umhverfisstofnunnar dags. 23. maí 2012 varðandi áform um áminningu og kröfur um úrbætur.  Frávik sem Ust. fór fram á að bætt yrði úr.

 

Björgu Gunnarsdóttur falið að svara umhverfisstofnun.

 

2.

Borgarbyggð, Dagur íslenskrar náttúru 

 

Mál nr. BN120129

Skjalnr.

571189-1519 Umhverfisráðuneyti, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík

 

Framlagt erindi umhverfisráðherra varðandi "Dag íslenskrar náttúru 16. september 2012".

 

3.

Borgarbyggð, Gróðurverndarmál 

 

Mál nr. BN120136

Skjalnr.

510694-2289 Borgarbyggð, Borgarbraut 14, 310 Borgarnes

 

Umræða um ástand beitarlands.

 

Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa falið að óska eftir því að héraðsfulltrúi Vesturlands hjá Landgræðslu ríkisins komi á næsta fund nefndarinnar til þess að ræða gróðurverndarmál í sveitarfélaginu.

 

4.

Borgarbyggð, Opin svæði í fóstur 

 

Mál nr. BN120130

Skjalnr.

510694-2289 Borgarbyggð, Borgarbraut 14, 310 Borgarnes

 

Umræða um opin svæði í fóstur í Borgarbyggð.

 

Nefndin lýsir yfir ánægju með góðar viðtökur við verkefninu.

 

5.

Borgarbyggð, Magn og tegundir úrgangs 

 

Mál nr. BN120133

Skjalnr.

701002-2880 Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík

 

Skil gagna um magn og tegundir úrgangs sem mótt. var árið 2011.

 

Framlögð gögn.

 

6.

Jarðvangur frá Berserkjahrauni að Grábrók,

 

Mál nr. BN120123

Skjalnr.

690894-2469 Eyja og Miklaholtshreppur, Hjarðarfelli, 311 Borgarnes

 

Framlagt erindi frá Eyja- og Miklaholtshreppi dags. 11.04.´12 þar sem óskað er eftir þátttöku Borgarbyggðar í verkefni um jarðvang frá Berserkjahrauni að Grábrók.  Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsnefndar á 231. fundi byggðarráðs þann 16. maí 2012.

 

Nefndin tekur jákvætt í erindið og varðandi þátttöku í verkefninu.

 

 

Framkvæmdaleyfi

7.

Álftá, Lagfæringar á veiðistöðum 

 

Mál nr. BN120121

Skjalnr.

470486-1129 Veiðifélag Álftár á Mýrum, Brúarlandi, 311 Borgarnes

 

Halldór Jónas Gunnlaugsson f.h. Veiðifélags Álftár sækir um leyfi til framkvæmda við lagfæringar á nokkrum veiðistöðum í Álftá, samkv. umsókn dags. 1. júní 2012.

 

Nefndin samþykkir erindið með þeim áskilnaði að framkvæmdir í Sjávarfossi eða Bæjarhyl verði unnar í nánu samráði við sérfræðinga hjá Veiðimálastofnun.

 

8.

Steindórsstaðir - Reykholt, Vatnsveita 

 

Mál nr. BN120119

Skjalnr.

551298-3029 Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

 

Björgvin Helgason f.h. Orkuveitu Reykjavíkur sækir um framkvæmdaleyfi til að reisa hús fyrir dælubúnað við Rauðsgil og leggja í jörð lögn milli Rauðsgils og Reykholts, samkv. umsókn dags. 1. júní 2012 og meðf. uppdráttum.

 

Nefndin samþykkir framkvæmdaleyfið og felur Jökli Helgasyni að ræða við Orkuveituna varðandi brunahana á lagnaleiðinni og heimæðargrein fyrir slökkvistöðina í Litla-Hvammi.

 

Skipulagsmál

9.

Bjarnhólar, Lýsigögn vegna aðalskipulagsbreytingar 

 

Mál nr. BN120131

Skjalnr.

510694-2289 Borgarbyggð, Borgarbraut 14, 310 Borgarnes

 

Framlögð lýsing á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 - 2022, frá Landlínum ehf. dags. 18. maí 2012, vegna sorpförgunar og efnistöku við Bjarnhóla í landi Hamars.

 

Samþykkt.

 

10.

Helluskógur II lóð 1, Deiliskipulagsbreyting 

(41.9700-10)

Mál nr. BN120118

Skjalnr.

110356-4209 Ása Ólafsdóttir, Kristnibraut 99, 113 Reykjavík

 

Hönnuður f.h. lóðarhafa leggur fram breytt deiliskipulag fyrir lóðina Helluskóga II nr. 1, dags. í maí 2012.

 

Nefndin hafnar tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Helluskóga II.

 

11.

Laufásland 196982, Deiliskipulagsbreyting 

(00.0100-40)

Mál nr. BN120132

Skjalnr.

160742-2599 Stefán Magnús Ólafsson, Litlu-Brekku, 311 Borgarnes

 

Framlögð tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundasvæðisins Selás í landi Laufás sem samþykkt var 27. júní 1990.

 

Framlagt til kynningar.

 

12.

Munaðarnes 134915, Deiliskipulagsbreyting 

(00.0600-00)

Mál nr. BN120120

Skjalnr.

200757-4089 Guðrún Soffía Karlsdóttir, Selbraut 72, 170 Seltjarnarnes

 

Hönnuður f.h. landeiganda leggur fram breytt deiliskipulag frístundabyggðarinnar í Munaðarnesi, dags. í febrúar 2012.  Breytingin felst í því að lóðum er fjölgað og bætt er við útivistarsvæðum og göngustígum.

 

Nefndin samþykkir skipulagstillöguna til auglýsingar.

 

Fyrirspurn

13.

Kárastaðaland/Hamarsland, Skotæfingasvæði 

 

Mál nr. BN120127

Skjalnr.

700412-0240 Skotfélag Vesturlands, Böðvarsgötu 27, 310 Borgarnes

 

Framlögð fyrirspurn frá Skotfélagi Vesturlands um svæði fyrir skotæfingar.

 

Umhverfis- og skipulagsnefnd telur mikilvægt að komið verði upp svæði fyrir skotæfingar í sveitarfélaginu. Nefndin óskar eftir frekari upplýsingum frá Skotfélagi Vesturlands og felur starfsmönnum umhverfis- og skipulagssviðs að ræða við félagið um framhald málsins.

 

14.

Sólbakki 4, Iðnaðarhús stækkun 

(80.6300-40)

Mál nr. BN120122

Skjalnr.

650804-3840 Eðalfang ehf, Sólbakka 4, 310 Borgarnes

 

Framlögð fyrirspurn frá Kristjáni Rafni Sigurðssyni f.h. Eðalfangs ehf. þar sem spurt er hvort hægt sé að stækka fasteignina Sólbakka 4 m.t.t. skipulags.

 

Nefndin tekur jákvætt í erindið.

 

Önnur mál

15.

Fundargerðir 31., 32. og 33. afgreiðslufunda byggingarf.,

 

Mál nr. BN120134

Skjalnr.

510694-2289 Borgarbyggð, Borgarbraut 14, 310 Borgarnes

 

Framlagðar til kynningar fundargerðir 31., 32. og 33. afgreiðslufunda byggingarfulltrúa Borgarbyggðar.

 

Ýmis mál

16.

Hvanneyri 133853, Landsvæði fyrir höggmyndir 

(00.0410-00)

Mál nr. BN120126

Skjalnr.

010445-2219 Hallsteinn Sigurðsson, Ystaseli 37, 109 Reykjavík

 

Sótt er um leyfi til að setja upp höggmyndir á tveimur landspildum á Hvanneyri, samkv. umsókn dags. 21. maí 2012.  Annars vegar er um að ræða 19.354 m² trjáræktarsvæðið sem nefnt hefur verið Ormurinn langi og hins vegar 61.928 m² útivistarsvæði suðvestur af byggðinni á Hvanneyri.

 

Nefndin gerir ekki athugasemdir við staðsetningu höggmyndanna og samþykkir erindið með fyrirvara um leyfi landeiganda.

 

17.

Langjökull - Surtshellir, Skoðunarferð 

 

Mál nr. BN120135

Skjalnr.

510694-2289 Borgarbyggð, Borgarbraut 14, 310 Borgarnes

 

Umræða um skoðunarferð nefndarmanna ásamt sveitarstjóra, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa og Snorra Jóhannessyni bónda á Augastöðum upp að Langjökli og Surtshelli, en ferðin var í boði björgunarsveitarinnar Ok.

 

Nefndin þakkar Björgunarsveitinni Ok fyrir sitt framtak.

 

 

Fleira ekki tekið fyrir.  Fundargerð upplesin og staðfest, fundi slitið kl. 11:30.

 

 



Til baka