Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
Afréttarnefnd Þverárréttar, fundur nr. 22

Dags. 13.6.2012

22. fundur Afréttarnefndar Þverárréttar var haldinn í Bakkakoti 13. júní 2012 og hófst kl 21:00.

Mættir voru; Kristján Axelsson, Ólafur Guðmundsson, Egill J. Kristinsson og Þórir Finnsson.

Kristján setti fund og stjórnaði honum. Þórir ritaði fundargerð.

Dagskrá.

1.       Endurskoðun á fjárhagsáætlun 2012.

Í fjárhagsáætlun sem gerð var 13. Nóvember sl. Var reiknað með að arður af Norðurá yrði c.a 60.000 kr. á einingu samtals 3.100.000, en á aðalfundi Veiðifélags Norðurár í apríl sl. Var samþykkt að ekki yrði greitt meira en 45.000 kr. á einingu en það er skerðing upp á 764.500 kr. sem breytir tekjuáætlun Afréttsnefndar Þverárréttar verulega, en í gjaldliðum 8 og 9 er reiknað með óvissum útjgöldum sem gætu komið á móti fyrrnefndri skerðingu að einhverju leyti.

2.       Erindi frá Borgarbyggð.

Fyrir fundinn lá bréf frá Sigurjóni Jóhannssyni formanni Fjallskilanefndar Borgarhrepps, Stafholtstungna og Norðurárdals vestan Norðurár.

Í þessu erindi er óskað eftir því að sveitarstjórn taki til afgreiðslu eftirfarandi erindi er varðar afréttarland á Bjarnadal.

Afréttarnefnd Þverárréttar láti koma með formlegum hætti hvort áhugi sé hjá sauðfjárbændum í Stafholtstungum að nýta afréttarland á Bjarnadal til sumarbeitar fyrir sauðfé. Eins og kunnugt er var land þetta nýtt til sumarbeitar af bændum í YstuTungu á sínum tíma, en flestar jarðir þar eru nú ýmist í eyði eða fjárlausar að mestu.

Allir nefndarmenn voru samþykktir því að athuga fyrir næsta vor hvort vilji væri að nýta u         mrætt land.

3.       Endurskoðun á fjallskilasamþykkt Mýra og Borgarfjarðarsýslna. Kristján sagði frá endurskoðun fjallskilasamþykktar en hann á sæti í þeirri nefnd. Endurskðun lýkur sennilega á næstu mánuðum.

4.       Viðhald á girðingum og tímasetning um opnun afréttar. Stefnt er að því að fara með Dalagirðingunni um næstu helgi en viðgerð á girðingu í Hellistungum er lokið. Reiknað er með að leyfa upprekstur í afréttum 25. júní samkvæmt samþykkt afréttarnefndar frá 21. júlí 2010. Tilkynnt verður ef breyting verður á tímasetningu.

5.       Önnur mál

Rætt um vandamál í Hvítsíðingaleitum og hvernig best verði leyst úr þeim. Undanfarin haust hafa verið erfiðleikar að koma safninu í gegnum hlið á fjallagriðingu. Rætt um að girða hólf neðan fjallgirðingar, sem safnið getur runnið í.

Fleira ekki gert en fundi skitið kl:23:45.

Þórir Finnsson

Ólafur Guðmundsson

Kristján F. Axelsson

Egill J. Kristinsson



Til baka