Fjallskilanefnd Borgarbyggðar , fundur nr. 11
Dags. 27.6.2012
Fundur var haldinn í fjallskilanefnd Borgarbyggðar, miðvikudaginn 27. júní 2012, kl. 16:00 í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi.
Mætt voru:
Aðalmenn:
Finnbogi Leifsson, formaður
Guðrún Sigurðardóttir
Jón Eyjólfsson
Jónas Jóhannesson
Sigurjón Jóhannsson
Starfsmaður nefndarinnar:
Í forföllum starfsmanns nefndarinnar ritaði Eiríkur Ólafsson fundargerð.
1. Ályktun aðalfundar Búnaðarsamtaka Vesturlands um samræmingu á leitum og réttum.
Lagt fram bréf Búnaðarsamtaka Vesurlands dagsett 24. apríl 2012 þar sem beint er til sveitarstjórna Dalabyggðar og Borgarbyggðar að samræma leitir í samstarfi við fjallskilanefndir og leitarstjóra.
Bréfinu var vísað til fjallskilanefndar af 231. fundi byggðarráðs þann 16. maí 2012.
Fjallskilanefnd tekur undir ályktun Búnaðarsamtakanna og fer fram á að Dalamenn felli ekki niður fyrstu leit á haustin, án samráðs við Borgarbyggð.
2. Ágangur búfjár úr Borgarbyggð á Skógarströnd
Lagt fram bréf Landgræðslufélags Skógarstrandar dagsett 12. apríl 2012 varðandi ágang búfjár úr Borgarbyggð.
Erindinu var vísað til fjallskilanefndar af 232. fundi byggðarráðs þann 24. maí 2012.
Fjallskilanefnd bendir á að ekki er lausagöngubann á sauðfé og telur að fjáreigendur séu að sleppa fé sínu á þeim svæðum sem þeim er heimilt.
Rétt er að benda landeigendum á heimild í girðingalögum hvað varðar girðingar um heimalönd.
3. Tilnefning í stjórn fjallskilaumdæmis
Rætt um tilnefningu fulltrúa í stjórn fjallskilaumdæmis Akraneskaupstaðar, Skorrdalshrepps, Hvalfjarðarsveitar og Borgarbyggðar.
Erindinu var vísað til fjallskilanefndar af 235. fundi byggðarráðs þann 21. júní 2012.
Fjallskilanefnd samþykkti að tilnefna Finnboga Leifsson og Kristján F. Axelsson sem aðalmenn og Jónas Jóhannesson og Ólaf Jóhannesson til vara.
4. Fjárhagsáætlun afrétta- og fjallskilanefnda
Formaður greindi frá að við uppgjör ársreiknings Borgarbyggðar fyrir árið 2011 var fært framlag frá aðalsjóði til að jafna viðskiptareikning við fjallskilasjóðina.
Fjallskilanefnd bendir fjallskilasjóðunum á þann möguleika að óska eftir endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.
5. Ný fjallskilasamþykkt
Kynnt var vinna við nýja fjallskilasamþykkt fyrir Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp og Borgarbyggð.
6. Önnur mál
Rætt um upplýsingar um kostnað við refa- og minkaveiði sem nýlega birtust á heimasíðu Borgarbyggðar. Fram kom að um sé að ræða tölur um brúttókostnað hvers sveitarfélags.
Rætt um erindi fjallskilanefndar Borgarhrepps, Stafholtstungna og Norðurárdals, vestan Norðurár varðandi nýtingu á afréttarlandi á Bjarnardal til sumarbeitar fyrir sauðfé.
Fundi slitið kl. 18,30.
Til baka