Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
Fólkvangurinn Einkunnir, fundur nr. 38

Dags. 12.7.2012

Umsjónarnefnd fólkvangsins Einkunna

38. fundargerð

Fundur haldinn hjá umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum

fimmtudaginn 12. júlí 2012 í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi.

 

 

 

Mættir voru:

Nefndarmenn:

Hilmar Már Arason, formaður

Sigríður Bjarnadóttir

Steinunn Pálsdóttir

 

Starfsmaður nefndarinnar:

Björg Gunnarsdóttir, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi, ritaði fundargerð.

 

 

 

  1. Lýsigögn vegna deiliskipulags.

Lögð fram lýsigögn dagsett 9. júlí 2012, vegna deiliskipulags Einkunna.

Lýsigögnin voru samþykkt með smávægilegum breytingum. Starfsmanni og formanni falið að koma athugasemdum til starfsmannsLandlína. 

 

  1. Salernisaðstaða.

Rætt um opnun salernisaðstöðu og fyrirkomulag hreinsunar.

Starfsmanni falið að kaupa áhöld og hreinlætisvörur á salernin. Ákveðið var að hafa sama fyrirkomulag fyrst í stað eins og með hirðingu sorps af svæðinu þ.e. að starfsmaður,  nefndarmenn og starfsmaður Skógræktarfélags Borgarfjarðar sjái um vöktun og hirðingu á þeim.

 

  1. Sveppatínslunámskeið

Rætt um fyrirhugað sveppatínslunámskeið 22. ágúst.  

            Skógræktarfélag Borgarfjarðar mun annast skipulagninu þessa námskeiðs.

 

  1. Girðing milli Einkunna og Tungulækjar.

Lögð fram yfirlitsmynd af staðsetningu girðingar (um 2km) milli Einkunna og Tungulækjar, Tungulækjarmegin við Háfslæk.

Samið var um við Borgarbyggð að Borgarbyggð leggði til efni í framkvæmdina en landeigendur eða menn á þeirra vegum vinnuna.

 

  1. Vettvangsferð.

Nefndin fór í vettvangsferð í Einkunnir og skoðaði salernin, bryggjuna við Álatjörn, fræðslurjóðrið, hluta af vinnu atvinnuátakshópsin og þann hluta girðingarinnar sem var kominn. Vinna fer að hefjast við lagfæringu bryggjunnar. Auðséð er að þeir sem hafa verið að nýta fræslurjóðrið í sumar hafa gengið mjög vel um. Atvinnuátakshópurinn á eftir þrjú verkefni í Einkunnum þ.e. smíði bekkja, lagningu votlendistígar og bæta kurli í stíga.  Það sem eftir er að girða af girðinunni á móti Tungulæk verður girt seinna í sumar, en sá sem girðir er þegar búinn að taka út allt efnið vegna allrar girðingarinnar.   

 

  1. Önnur mál.


Til baka