|
1. |
1207021 - Kærunefnd útboðsmála - kæra á útboði á skólaakstri |
|
|
Framlögð niðurstaða kærunefndar útboðsmála vegna stöðvunarkröfu Sturlu Stefánssonar á innkauparferli Borgarbyggðar vegna útboðs á skólaakstri. Kærunefnd hafnaði stöðvunarkröfunni. |
|
|
|
|
|
2. |
1207022 - Kærunefnd útboðsmála - kæra á útboði á skólaakstri |
|
|
Framlögð niðurstaða kærunefndar útboðsmála vegna stöðvunarkröfu Sigurðar Inga Þorsteinssonar á innkaupaferli Borgarbyggðar vegna útboðs á skólaakstri. Kærunefnd hafnaði stöðvunarkröfunni. |
|
|
|
|
|
3. |
1207028 - Kærunefnd útboðsmála - Grund |
|
|
Framlagður úrskurður Kærunefndar útboðsmála vegna stöðvunarkröfu Grundar ehf. á innkaupaferli Borgarbyggðar vegna útboðs á skólaakstri. Kærunefnd hafnaði stöðvunarkröfunni. |
|
|
|
|
|
4. |
1207037 - Samningar um skólaakstur fyrir tímabilið 2012-2016. |
|
|
Framlagðir samningar um skólaakstur við Grunnskólann í Borgarnesi og Grunnskóla Borgarfjarðar fyrir tímabilið 1. ágúst 2012 til 1. júlí 2016. Samningar voru samþykktir með tveimur atvkæðum. Finnbogi Leifsson sat hjá. |
|
|
|
|
|
5. |
1207027 - Erindi vegna vöktunar á sorpurðunarstaðnum við Bjarnhóla. |
|
|
Framlagt bréf frá Borgarverki vegna vöktunar á sorpurðunarstaðnum við Bjarnhóla í Borgarbyggð. Byggðarráð samþykkti að á meðan svæðið er í skipulagsferli verði ekki samið við verktaka um vöktun. Sveitarstjóra falið að svara bréfritara. |
|
|
|
|
|
6. |
1207026 - Erindi frá foreldri vegna dagvistunar. |
|
|
Framlagt erindi frá foreldri vegna dagvistunar barns í öðru sveitarfélagi. Með hliðsjón af nýjum viðmiðunarreglum Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna leikskóladvalar utan lögheimilissveitarfélaga getur Borgarbyggð ekki orðið við erindi bréfritara. |
|
|
|
|
|
7. |
1207032 - Endurskoðuð tillaga mennta- og menningarráðuneytisins að húsnæðisframlagi fyrir MB. |
|
|
Framlögð endurskoðuð tillaga mennta- og menningarráðuneytis vegna húsnæðisframlags til Menntaskóla Borgarfjarðar. Sveitarstjóra falið að funda með fulltrúum mennta- og menningarráðuneytisins um tillöguna. |
|
|
|
|
|
8. |
1207033 - Hækkun á kennslukvóta fyrir skólaárið 2012-2013 |
|
|
Framlagt erindi frá skólastjóra Grunnskóla Borgarfjarðar þar sem óskað er eftir hækkun á kennslukvóta fyrir skólaárið 2012-2013 vegna fjölgunar nemenda. Byggðarráð óskar eftir frekari gögnum varðandi máli. |
|
|
|
|
|
9. |
1207034 - Borgarbraut 57-59 |
|
|
Á fundinn komu Óli Jón Gunnarsson og Bergþór Ólason frá Loftorku til umræðna um lóðina að Borgarbraut 59 og fasteignina að Borgarbraut 57. |
|
|
|
|
|
10. |
1207035 - Tjaldsvæðið við Granastaði |
|
|
Á fundinn mætti Gylfi Árnason frá Tourist online til viðræðna um rekstur tjaldsvæðisins á Granastöðum. Byggðarráð samþykkti að fela sveitarstjóra að kynna málið fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd Borgarbyggðar. |
|
|
|
|
|
11. |
1207036 - Athugsemdir við rotþróahreinsun |
|
|
Framlagt bréf frá Stefáni Magnússyni þar sem gerðar eru athugasemdir við losun rotþróar við Melabyggð í Reykholtsdal. Sveitarstjóra falið að ræða við verktaka og svara bréfritara. |
|
|
|
|
|
12. |
1207038 - Beiðni um stofnun nýrrar lóðar úr landi Bjargs 2 í Borgarbyggð |
|
|
Framlagt erindi frá Vegagerðinni þar sem óskað er eftir að stofna 1600 fm lóð úr landi Bjargs 2 í Borgarbyggð undir vegsvæði. Byggðarráð samþykkti erindið. |
|
|
|
|
|
13. |
1207039 - Stofnun lóða úr landi Ánastaða-Miklagarðs. |
|
|
Framlagt erindi frá Elísabetu Pálsdóttur þar sem hún óskar eftir að stofna tvær lóðir úr landi Ánastaða-Miklagarðs í Borgarbyggð. Önnur lóðin mun bera heitið Sel og er 12,6 ha, en hin lóðin ber heitið Ásgarður og er 33,5 ha. Byggðarráð samþykkti að vísa erindinu til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
|
|
|
|
|
14. |
1206046 - Sauðfjárveikivarnarlína í landi Gilsbakka í Borgarbyggð. |
|
|
Rætt um girðingu á landamerkjum Gilsbakka og afréttarlands Borgarbyggðar sem áður þjónaði sem sauðfjárveikivarnarlína. Borgarbyggð hefur ekki borist svar frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu við kröfu um kostnaðarþátttöku ríkisins. Byggðarráð samþykkti að vísa erindi landeigenda til vinnu við fjárhagsáætlun. |
|
|
|
|
|
15. |
1207001 - Hesthús við Lónaborg |
|
|
Rætt um byggingu hesthúss við Lónaborg á afrétti Þverhlíðinga. Byggðarráð samþykkti að veita kr. 800.000 til byggingar hesthússins, til viðbótar við þau 1.200.000 sem voru í fjárhagsáætlun ársins. Fjárveitingin verður viðauki við framkvæmdakostnað sveitarfélagsins á árinu 2012. |
|
|
|
|
|
16. |
1207041 - Símaþjónusta og nettengingar |
|
|
Rætt um símaþjónustu og nettengingar og mögulegar leiðir til að auka hagræði í þessum rekstrarþáttum. Byggðarráð samþykkti að óska eftir minnisblaði frá innkauparáði varðandi innkaup sveitarfélagsins á áðurnefndri þjónustu. |
|
|
|
|
|
17. |
1207042 - Undanþága frá reglugerð um sundlaugar |
|
|
Rætt um rekstur sundlauga Borgarbyggðar á Kleppjárnsreykjum og Varmalandi og möguleika á því að fá undanþágu frá þeim hluta 11.gr. reglugerðar um sundstaði er varðar fjölda starfsmanna við sundalaugarnar. Byggðarráði samþykkti að fela sveitarstjóra að óska eftir undanþágunni. |
|
|
|
|
|
18. |
1207043 - Takmarkanir á akstri um Uxahryggjaveg |
|
|
Rætt um takmarkanir á akstri í gegnum þjóðgarðinni á Þingvöllum, sem er hluti af veginum um Uxahryggi, en nýverið var umferð stærri bíla en 10 tonn bönnuð á Uxahryggjaleið um Þingvelli. Sveitarstjóra falið að koma á framfæri athugasemdum við Vegagerðina varðandi þessar takmarkanir. |
|
|
|
|