Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
Fyrri mánuður
maí 2013
Næsti mánuður
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 240

Dags. 9.8.2012

240. fundur Byggðarráðs Borgarbyggðar
haldinn  í fundarsal í ráðhúsi að Borgarbraut 14 í Borgarnesi, fimmtudaginn
9. ágúst 2012
og hófst hann kl. 08:00


Fundinn sátu:
Ingibjörg Daníelsdóttir varaformaður, Páll Snævar Brynjarsson sveitarstjóri,
Finnbogi Leifsson aðalmaður og Dagbjartur Ingvar Arilíusson varamaður.

 

Fundargerð ritaði:  Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri

 

Dagskrá:

 

1. 1207033 - Hækkun á kennslukvóta fyrir skólaárið 2012-2013

Rætt um hækkun á kennslukvóta við Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi. Erindið var til umræðu á síðasta fundi byggðarráðs og var þá óskað eftir frekari upplýsingum.

Byggðarráð samþykkti að verða við erindinu.
 
Jafnframt var framlagður tölvupóstur frá skólastjóra Grunnskólans í Borgarnesi þar sem hann óskar eftir hærri kennslukvóta vegna fjölgunar í árgangi.

Byggðarráð óskar eftir frekari útfærslu frá skólastjóra varðandi það hvernig hann hyggst mæta áðurnefndri fjölgun.
 


2. 1206021 - Framkvæmdir 2012

Á fundinn mætti Jökull Helgason forstöðumaður umhverfis-og skipulagssviðs og gerði grein fyrir stöðu framkvæmda og viðhaldsverkefna sumarið 2012

3. 1207020 - Refa- og minkaveiði

Rætt um skipulagi refa- og minkaveiða.

Byggðarráð samþykkti að óska eftir því að vinnuhópur um refa- og minkaveiði sem starfaði árið 2008 komi saman að nýju og meti skipulag og árangur af veiðinni í dag.

4. 1208002 - Fundarboð á aðalfund SSV 2012

Framlagt fundarboð á aðalfund SSV sem fram fer í Stykkishólmi dagana 31. ágúst og 1. september n.k.

5. 1208003 - Ósk um smölun ágangsfjár

Framlagt bréf frá Sigvalda Ásgeirssyni þar sem óskað er eftir að Borgarbyggð smali ágangsfé í landi Vilmundarstaða.

Byggðarráð samþykkti að vísa erindinu til fjallskilanefndar Borgarbyggðar sem mun funda 13. ágúst n.k.

6. 1208001 - Fjárhagsáætlun og rauntölur, jan-júní 2012

Á fundinn mætti Einar G. Pálsson fjármálafulltrúi og kynnti fjárhagsstöðu Borgarbyggðar eftir fyrstu 6 mánuði ársins 2012.
 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09.55

 

 

 

 



Til baka