Fjallskilanefnd Borgarbyggðar , fundur nr. 12
Dags. 13.8.2012
12. Fundur fjallskilanefndar Borgarbyggðar haldinn í Ráðhúsi Borgarbyggðar mánudaginn 13.08.2012 og hófst hann kl 16:00.
Fastir aðalmenn : Finnbogi Leifsson formaður, Kristján Axelsson, Jón Eyjólfsson, Sigurjón Jóhannsson og Ólafur Jóhannesson. Varamaður Svanur Pálsson.
Formaður sett fund og gerði tillögu um að Jón Eyjólfsson stýrði fundi. Finnbogi Leifsson ritaði fundargerð.
Eftirfarnadi var tekið fyrir.
1. Framkvæmd fjallskila.
Breytingar á leitar og réttardögum og framkvæmd heimasmalana 2012 frá fjallskilasamþykktum.
Önnur Grímsstaðarrétt verður mánudaginn 1.Okt.
Þriðja Grímsstaðarrétt verðru mánudaginn 8. Okt.
Önnur Svignaskarðsrétt verður mánudaginn 1. Okt.
Þriðja Svignaskarðsrétt verður mánudaginn 8. Okt.
Þriðja Hítardalsrétt verður mánudaginn 8. Okt.
Heimasmalanir verða framkvæmdar helgina 6-7 október á svæðinu frá Jafnaskarði að Hítará.
Fyrsta smölun á Bjarnadal verður 12. September
Önnur smölun þar verður 26. September
Nefndin samþykkir að heimila að vikið verði frá dagsetningu á fjallskilasamþykkt vegna smölunar á Geitlandi.
Breyting er varðar leitardaga á leitarsvæði til Þverárréttar: Stafholtstungnamenn gera fyrstu leit til Þverárréttar dagana 14,15 og 16 september.
Breyting er varðar leitardaga á leitarsvæði til Fljótstunguréttar. Leitardagar til annarar Fljótstunguréttar verði fimmtudag, föstudag og laugardag í 22 viku sumars.
Tillögurnar voru samþykktar.
2. Dagsverkamat.
Nefndin leggur til að dagsverkið verði metið á á kr. 10.000.-
3. Erindi frá Byggðarráði.
Tekið fyrir erindi sem vísað var til nefndarinar frá byggðarráði 9 ágúst s.l frá Sigvalda Ásgeirssyni Vilmundarstöðum þar sem hann fer fram á að sveitarfélagið smali ágangsfé í landi Vilmundarstaða. Fjallskilanefnd telur að ekkert hafi komið fram sem bendir til þess að ágangur sé óeðlilegur, sbr 10.gr fjallskilasamþykktar fyrir Borgarfjarðarsýslu og Akraneskaupstað frá 2006. Því leggur nefndin til að erindinu sé hafnað.
4. Erindi frá landeigendum í Norðurárdal.
Lagt fram erindi frá nokkrum landeigendum í Norðurárdal, þar sem mótmælt er samþykkt fjallskilanefndar Borgarhrepps, Ystu-Tungu og Norðurárdals frá 01.08 s.l um að leggja fjallskilagjald á landverð jarða , sem ekki hafa afréttarnot.
Fjallskilanefnd beinir því til sveitarstjórnar að hún láti kanna hvort umrædd álagning sé heimil.
Einnig er mótmælt af hálfu landeigenda áformum um að leggja niður skilarétt á Brekku í Norðurárdal. Fjallskilanefnd bendir á að breytingar á fjallskilareglugerð þarf til að leggja niður Brekkurétt.
5. Fjallskilareglugerð.
Rætt um vinnu við nýja fjallskilareglugerð.
6. Önnur mál.
a) Formaður sagði frá því að til stæði að byggja skilarétt að Horni í Skorradal, sem kæmi í stað Hreppsréttar.
b) Fundarmenn lýstu áhyggjum af ónákvæmum upplýsingum frá M.A.S.T vegna fjölda og skiptingar sauðfjár milli eigenda. Einnig bendir nefndin á að ósamræmi er á mati á landverði jarða.
Fleira ekki tekið fyrir .
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl 18:00
Finnbogi Leifsson fundarritari.
Til baka