Afréttarnefnd Borgarhr., Stafholtst. og Norðurárd, fundur nr. 21
Dags. 23.8.2012
Fjallskilanefnd BSN
21. fundur
Fundur var haldinn í fjallskilanefnd Borgarhrepps, Ystu-Tungu og Norðurárdals.
Fimmtudaginn 23. ágúst kl. 16:00 á Valbjarnarvöllum.
Mætt voru: Sigurjón Jóhannsson, formaður,Guðrún Fjeldsted og Hlynur Klemenzson. Jóhann Harðarson forfallaðist.
Komum saman til fundar til að leggja á fjallskil. Dagsverk er metið á 10 þúsund krónur. Lagt á 1816 vetrarfóðraðar kindur kr 650 á kind í afrétti Borghreppinga og Ystutungu samkvæmt vorskýrslum búfjáreftirlits og 3%gjald á fasteignamat lands bújarða, jafnt þó í eyði séu.
Fallið var frá því að leggja á landverð jarða í Norðurárdal vestan Norðurár að sinni.
Fundi slitið.
Til baka