Byggingafulltrúi - afgreiðslufundir, fundur nr. 38
Dags. 29.8.2012
38. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Borgarbyggðar var haldinn í Ráðhúsinu Borgarbraut 14 miðvikudaginn 29. ágúst 2012 kl. 09:00.
Mættir voru:
Jökull Helgason forstm. umhverfis- og skipulagssviðs, Bjarni Þorsteinsson slökkviliðsstjóri og Baldur S. Tómasson byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
Framkvæmdaleyfi
1. Þjóðvegur 1 yfir Borgarfjörð, Göngu- og hjólreiðastígur
Mál nr. BN120184 500295-2879 Vegagerðin, Vesturlandsumdæmi, Borgarbraut 66, 310 Borgarnes
Auðunn Hálfdánarson f.h. Vegagerðarinnar sækir um leyfi til framkvæmda við gerð göngu- og hjólreiðastígs með þjóðvegi 1 yfir Borgarfjörð, samkv. meðf. gögnum.
Samþykkt, með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 6. júní 2011.
Byggingarl.umsókn
2. Bjarnarbraut 8, Skrifstofuhúsnæði þakbreyting (09.6300-80) Mál nr. BN120182
581290-1369 Húsfélagið Bjarnarbraut 8, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes
Pálmi Sævarsson f.h. Húsfélagsins Bjarnarbraut 8 sækir um leyfi til að byggja létt timburþak í stað glerþaks yfir tengibyggingu Bjarnarbraut 8, samkv. umsókn dags. 23. ágúst 2012 og meðf. teikn. frá Verkfræðistofunni Verkís Borgarnesi.
Stærðir óbreyttar.
Samþykkt.
3. Brókarvatn 26, Sumarhús stækkun
(15.0802-60) Mál nr. BN120183
030359-7719 Einar Ragnarsson, Bæjargili 61, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að stækka áður samþykkt sumarhús á lóð nr. 26 við Brókarvatn í landi Arnarstapa, samkv. umsókn dags. 27. ágúst 2012 og meðf. teikn. frá Teiknistofu VA arkitekta, Reykjavík.
Stærðir fyrir breytingu: 152,4 m² 571,1 m³
Stærðir eftir breytingu: 162,6 m² 603,6 m³.
Samþykkt.
Fundargerð upplesin og samþykkt, fundi slitið kl. 09:30
Til baka