Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Sveitarstjórn, fundur nr. 45

Dags. 25.6.2009

Ár 2009, fimmtudaginn 25. júní kom sveitarstjórn Borgarbyggðar saman til fundar kl. 16:30 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Fundinn sátu:

            aðalfulltrúar:                 Björn Bjarki Þorsteinsson

                                                Ingunn Alexandersdóttir

                                                Finnbogi Rögnvaldsson

                                                Þór Þorsteinsson

                                                Sveinbjörn Eyjólfsson

                                                Jenný Lind Egilsdóttir

                                                Finnbogi Leifsson

                                                Torfi Jóhannesson

            varafulltrúi:                   Ingibjörg Daníelsdóttir

            sveitarstjóri:                 Páll S. Brynjarsson 

 

Fundargerð ritaði Linda Björk Pálsdóttir.

Forseti setti fund og var eftirfarandi tekið fyrir:

 

1.         Fundargerð sveitarstjórnar  11.06.        ( 44 )

Fundargerðin sem er í 14 liðum var framlögð.

 

2.         Fundargerð byggðarráðs 16.06.             ( 118 )

Fundargerðin sem er í 21 lið var samþykkt samhljóða.

 

Fundargerð byggðarráðs 24.06.                         ( 119 )

Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi aðgerðir til hagræðingar í rekstri Borgarbyggðar:

1.  Í fræðslumálum samþykkir sveitarstjórn:

     a.  Sala á þjónustu:  Kannað verði hvort unnt sé að selja nágrannasveitarfélögum þjónustu.

     b.  Sérfræðiþjónusta:  Farið í að endurskoða frá grunni allt stoðkerfi fræðslumála í sveitarfélaginu.

     c.  Sumarlokun leikskóla:  Rætt um lengingu sumarlokunar leikskóla fyrir árið 2010.

     d.  Tómstundarskóli og skólasel:  Sveitarstjóra falið að fara gera tillögu um hagræðingu í rekstri Tómstundaskóla og skólasela.

     e.  Dagvistun: Greiðslur til dagforeldra verði lækkaðar um 10%. Komist barn á leikskóla við 18 mánaða aldur falli greiðslur niður, nema í sérstökum undantekningartilvikum.

     f.  Endurskoðun skólamála: Stofnaður verði vinnuhópur er skoði hagræðingu í fræðslumálum sveitarfélagins.

     g.  Menntaborg ehf.: Unnið verði að endurfjármögnun Menntaborgar ehf., fasteignafélags Menntaskóla Borgarfjarðar.

 

2.  Í félags-, menningar- og tómstundamálum samþykkir sveitarstjórn:

     a.       Félagsheimili: Að breyta rekstrarformi félagsheimila sveitarfélagsins þannig að þau verði leigð félagasamtökum eða einstaklingum.  Stefna  skal að sölu félagsheimilanna Valfells og Þverárréttar.  Finnbogi Leifsson sat hjá við þennan lið.

     b.      Framlag til menningarstofnana: Samningsbundin framlög til menningarstofnana lækki um 10% á næsta ári. Farið í viðræður við aðila um málið.

     c.       Opnunartími safna og íþróttahúsa: Að endurskoða opnunartíma íþróttamiðstöðva og safna á vegum Borgarbyggðar.

     d.      Bókasöfn: Sameinuð verði bókakaup til bókasafna. Sveitarstjóra falið að gera tillögur að hagræðingu í rekstri bókasafna sem eru á forræði sveitarfélagsins.

     e.       Samstarf menningarstofnana: Skoða frekara samstarf og/eða samvinnu menningarstofnana. Farið í viðræður við aðila málsins.

     f.        Þrettándabrenna: Að koma þrettándabrennu í Borgarnesi í „fóstur“ til félagasamtaka.

     g.       Félagsstarf aldraðra: Farið verði fram á viðræður við stjórn DAB um mögulegt aukið samstarf.  Bjarki lýsti yfir vanhæfi sínu við umfjöllun um þennan lið.

     h.       Sala á þjónustu: Að fara yfir þá möguleika sem felast í frekara samstarfi við nágrannasveitarfélög í félagsþjónustu.

     i.         Húsaleigubætur: Samþykkt að kanna lagaskyldur sveitarfélagsins varðandi greiðslu húsaleigubóta. 

     j.        Mímir: Núverandi húsnæði verði boðið til leigu og starf Mímis fari inn í Menntaskóla Borgarfjarðar.

 

3.  Í málefnum framkvæmdasviðs og eignasjóðs samþykkir sveitarstjórn:

     a.   Að kanna möguleika á fækkun söfnunardaga sorps í þéttbýli.

     b.   Að fækka gámastöðvum í dreifbýli.

     c.    Að skoða möguleika á sparnaði við opin svæði og umhverfismál.

     d.   Að fresta framkvæmdum við gangstéttir í Borgarnesi; Arnarklettur og     Kvíaholt.

     e.   Að endurskoða framkvæmdir við Vatnsveitu Álftaneshrepps. Heildarkostnaður á árinu 2009 fari ekki yfir 6 milljónir.

     f.    Að efla ennfrekar kostnaðareftirlit við samninga framkvæmdasviðs.

     g.   Að skoða sölu á eignarhlutum í fyrirtækjum og fasteignum.

     h.   Að fresta frekari ljósastauravæðingu í dreifbýli og draga úr kostnaði við raflýsingu/götulýsingu. Samþykkt að fela framkvæmdasviði að skila tillögum  um málið.

     i.    Að endurskoða samninga um þjónustu á fjölsóttum ferðamannastöðum.

 

4.  Í fjármálum sveitarstjórnar og ráðhúss samþykkir sveitarstjórn:

     a.   Að leita eftir endurskoðun á lánasamningum sveitarfélagins.

     b.   Að segja upp öllum samningum um fasta yfirvinnu starfsmanna sveitarfélagins frá og með næstu mánaðarmótum.  Uppsagnir berist starfsmönnum fyrir 1. júlí nk. þannig að þær taki gildi frá og með 1. október nk. og fyrir þann tíma verði             búið að semja við starfsmenn um breytta tilhögun.

     c.  Unnið verði að endurskoðun samninga um tölvu- og símaþjónustu.

 

Fundargerðin sem er í 18 liðum var samþykkt samhljóða.

Til máls tóku allir.

 

3.         Fundargerð fræðslunefndar 16.06.               ( 55 )

Fundargerðin sem er í 8 liðum var samþykkt samhljóða.

Til máls tóku IA, FR, PSB, SE, JLE, BÞ, ÞÞ, FL.

 

4.         Síðari umræða um breytingu á 57. gr. um stjórn og fundarsköp Borgarbyggðar

 

Lögð var fram til seinni umræðu tillaga að breytingu á 57. grein samþykkta um stjórn og fundarsköp Borgarbyggðar. 

 

Tillagan samþykkt samhljóða með framkomnum breytingartillögum.

Til máls tóku PSB, FL.

 

5.         Kosning í nefndir

 

Félagsmálanefnd:

Aðalmenn:

Haukur Júlíusson, Túngötu 9, 311 Borgarnes

Kristín Valgarðsdóttir, Réttarholti 10, 310 Borgarnes

Þórvör Embla Guðmundsdóttir, Björk, 320 Reykholt

Guðbjörg Sigurðardóttir, Höfðaholti 7, 310 Borgarnes

Jónína Heiðarsdóttir, Múlakoti, 311 Borgarnes

 

Varamenn:

Ingibjörg Daníelsdóttir, Fróðastöðum, 320 Reykholt

Ingunn Alexandersdóttir, Lækjarbug, 311 Borgarnes

Þóra Árnadóttir, Brennistöðum, 311 Borgarnes

Eygló Egilsdóttir, Dílahæð 7, 310 Borgarnes

Svava Kristjánsdóttir, Túngötu 4, 311 Borgarnes

 

Fræðslunefnd:

Aðalmenn:                                                       

Þór Þorsteinsson  Skálpastöðum 2,  311 Borgarnes     

Finnbogi Leifsson  Hítardal,  311 Borgarnes

Rósa Marinósdóttir Túngötu 12,  311 Borgarnes

Karvel Karvelsson  Hýrumel 4,  320 Reykholt              

Elfa Hauksdóttir, Höfðaholti 10, 310 Borgarnes                       

 

Varamenn:

Finnbogi Rögnvaldsson, Skúlagötu, 310 Borgarnes

Guðbjörg Sigurðardóttir, Höfðaholti 7, 310 Borgarnes

Dagný Sigurðardóttir, Skeljabrekku, 311 Borgarnes

Bergþór Kristleifsson, Húsafelli, 320 Reykholt

Vilhjálmur Diðriksson, Helgavatni, 311 Borgarnes

 

Tómstunda- og menningarnefnd:

Aðalmenn:                                                          

Ásdís Helga Bjarnadóttir Túngötu 19a, 311 Borgarnes

Magnús Þorgrímsson, Gunnlaugsgötu, 310 Bgn.                       

Unnsteinn Elíasson, Ferjubakka, 311 Borgarnes                     

Björn Bjarki Þorsteinsson  Þorsteinsgötu 14,  310 Bgn.

Jónína Erna Arnardóttir Þórunnargötu 2,  310  Bgn.  

 

Varamenn:

Þorvaldur Jónsson, Brekkukoti, 320 Reykholt

Kristmar Ólafsson, Gunnlaugsgötu, 310 Borgarnes

Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Hallveigartröð, 320 Reykholt

Ari Björnsson, Kjartansgötu 13, 310 Borgarnes

Guðrún Hulda Pálmadóttir, Skúlagötu 11, 310 Borgarnes

 

Skipulags- og byggingarnefnd:

Aðalmenn:                                                       

Torfi Jóhannesson  Hvanneyri,  311 Borgarnes             

Jóhannes Stefánsson Ánabrekku,  311 Borgarnes         

Ragnhildur Jónsdóttir, Ausu, 311 Borgarnes                 

Sigríður Bjarnadóttir  Þórólfsgötu 8a, 310 Borgarnes

Kolbeinn Magnússon, Stóra-Ási, 311 Borgarnes  

 

Varamenn:

Magnús Guðjónsson, Fálkakletti 13, 310 Borgarnes

Brynjólfur Guðmundsson, Hlöðutúni, 311 Borgarnes

Haukur Júlíusson, Túngötu 9, 311 Borgarnes

Jenný Lind Egilsdóttir, Hamravík 12, 310 Borgarnes

Bergur Þorgeirsson, Reykholti, 320 Reykholt

 

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd:

Aðalmenn:                                                                   

Ingibjörg Daníelsdóttir, Fróðastöðum, 311 Borgarnes

Kristján Magnússon, Snorrastöðum 1, 311 Borgarnes                          

Pálmi Þór Sævarsson, Hrafnakletti 8, 310 Borgarnes                    

Jenný Lind Egilsdóttir Hamravík 12,  310 Borgarnes     

Sigrún Ólafsdóttir  Hallkelsstaðahlíð,  311 Borgarnes

 

Varamenn:

Sigurður Helgason, Hraunholtum, 311 Borgarnes

Guðni Eðvarðsson, Brautartungu, 311 Borgarnes

Guðmundur Sigurðsson, Hvanneyri, 311 Borgarnes

Sveinbjörn Eyjólfsson, Hvannatúni, 311 Borgarnes

Jónas Jóhannesson, Jörva, 311 Borgarnes        

                       

           

 

 

                                                Fleira ekki gert.

 

                                                Fundargerðin upplesin

                                                og samþykkt samhljóða.

 

                                                Fundi slitið kl. 19,00.

 



Til baka