Sveitarstjórn, fundur nr. 51
Dags. 23.11.2009
Ár 2009, mánudaginn 23. nóvember kom sveitarstjórn Borgarbyggðar saman til fundar kl. 16:00 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.
Fundinn sátu:
aðalfulltrúar: Björn Bjarki Þorsteinsson
Finnbogi Rögnvaldsson
Þór Þorsteinsson
Haukur Júlíusson
Jenný Lind Egilsdóttir
Finnbogi Leifsson
Torfi Jóhannesson
Sveinbjörn Eyjólfsson
Þórvör Embla Guðmundsdóttir
sveitarstjóri: Páll S. Brynjarsson
Fundargerð ritaði Eiríkur Ólafsson.
Forseti setti fund og var eftirfarandi tekið fyrir:
1. Ábyrgð á láni Orkuveitu Reykjavíkur
Framlagt var bréf Orkuveitu Reykjavíkur dags. 30.10.’09 þar sem farið er fram á staðfestingu eigenda á samþykkt stjórnar um að taka tilboðum að fjárhæð allt að 10 milljarðar króna í skuldabréfaflokk, útgefnum af Orkuveitu Reykjavíkur.
Sveitarstjórn samþykkti erindið fyrir sitt leyti.
Fleira ekki gert.
Fundargerðin upplesin
og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 16,15
Til baka