Sveitarstjórn, fundur nr. 58
Dags. 29.3.2010
Ár 2010, mánudaginn 29. mars kom sveitarstjórn Borgarbyggðar saman til fundar kl. 17:00 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.
Fundinn sátu:
aðalfulltrúar: Björn Bjarki Þorsteinsson
Finnbogi Rögnvaldsson
Þór Þorsteinsson
Haukur Júlíusson
Jenný Lind Egilsdóttir
Finnbogi Leifsson
Torfi Jóhannesson
Sveinbjörn Eyjólfsson
Þórvör Embla Guðmundsdóttir
sveitarstjóri: Páll S. Brynjarsson
Fundargerð ritaði Páll S. Brynjarsson.
Forseti setti fund og var eftirfarandi tekið fyrir:
1. Lánasamningur við Lánasjóð sveitarfélaga ohf.
Framlagður var lánasamningur við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. og var eftirfarandi samþykkt;
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að upphæð kr. 77.000.000.- til 14 ára, í samræmi við lánstilboð sem liggur fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir á árinu 2010 (28m) ásamt því að endurfjármagna hluta af afborgunum sveitarfélagsins til lánasjóðsins á fyrri hluta árs 2010 (49m), sbr. 3.gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Páli S. Brynjarssyni kt. 010365-4819, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Borgarbyggðar að undirrita lánasamning við Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. sbr, framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Fleira ekki gert.
Fundargerðin upplesin
og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 17:15
Til baka