Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Sveitarstjórn, fundur nr. 60

Dags. 14.5.2010

Ár 2010, föstudaginn 14. maí kom sveitarstjórn Borgarbyggðar saman til fundar kl. 15:00 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Fundinn sátu:

            aðalfulltrúar:                Björn Bjarki Þorsteinsson

                                               Finnbogi Rögnvaldsson

                                               Þórvör Embla Guðmundsdóttir

                                               Þór Þorsteinsson

                                               Haukur Júlíusson

                                               Jenný Lind Egilsdóttir

                                               Finnbogi Leifsson

                                               Torfi Jóhannesson

                                               Sveinbjörn Eyjólfsson

                                    

             sveitarstjóri:                Páll S. Brynjarsson 

 

Fundargerð ritaði Eiríkur Ólafsson.

Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

 

1.         Ársreikningur Borgarbyggðar og undirfyrirtæja 2009  ( seinni umræða )

Lagður var fram til seinni umræðu ársreikningur Borgarbyggðar og undirfyrirtækja fyrir árið 2009.

Lögð var fram endurskoðunarskýrsla KPMG ehf. um endurskoðun á ársreikningnum.

Helstu niðurstöðutölur A og B hluta eru þessar:

 

            Rekstrartekjur             2.392.077  þús. kr.

            Rekstrargjöld              2.282.607  þús. kr.

            Fjármagnsgjöld              268.822  þús. kr.

            Fastafjármunir            3.324.545  þús. kr.

            Veltufjármunir               265.509  þús. kr.

            Eigið fé                         275.745  þús. kr.

            Skuldbindingar              482.103  þús. kr.

            Langtímaskuldir          2.312.135  þús. kr.

            Skammtímaskuldir        520.070  þús. kr.

 

Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða.  

Forseti lagði fram svohljóðandi bókun:

"Þrátt fyrir tap á rekstri Borgarbyggðar á árinu 2009 er niðurstaðan nokkru betri en áætlun gerði ráð fyrir.  Árið 2009 var sveitarfélaginu þungt, en þrátt fyrir fækkun íbúa, lækkun skatttekna og aukna greiðslubyrði lána eru batamerki í rekstri Borgarbyggðar á árinu 2009.  Það má glöggt sjá á því að rekstrarkostnaður sveitarfélagsins lækkaði á milli áranna 2008 og 2009 um 4,9% eða 118 milljónir þrátt fyrir ríflega 10% verðbólgu.

Miðað við fjárhagsáætlun ársins 2010 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2011-2013 er ekki ástæða til annars en ætla að þær hagræðingaraðgerðir sem gripið hefur verið til muni skila árangri, en þó má vissulega lítið út af bregða og eru sveitarstjórnarmenn í Borgarbyggð meðvitaðir um mikilvægi þess að eftirlit sé stöðugt þannig að hægt sé að grípa til aðgerða ef þurfa þykir."

Björn Bjarki Þorsteinsson              (sign)

Finnbogi Rögnvaldsson                 (sign)

Jenný Lind Egilsdóttir                   (sign)

Sveinbjörn Eyjólfsson                  (sign)

Finnbogi Leifsson                         (sign)

Haukur Júlíusson                         (sign)

Þór Þorsteinsson                         (sign)

Þórvör Embla Guðmundsdóttir      (sign)

Torfi Jóhannesson                       (sign)

Til máls tóku BBÞ, PSB, HJ, SE, ÞÞ, JLE.

 

2.         Fundargerð sveitarstjórnar 15.04.       ( 59 )

Fundargerðin sem er í 9 liðum var framlögð.

 

3.         Fundargerð byggðarráðs 21.04.                 ( 151 )

5. liður, raflýsing í Borgarbyggð var samþykktur með 7 atkvæðum.  2 (FR, TJ) sátu hjá.

Fundargerðin sem er í 15 liðum var að öðru leiti samþykkt samhljóða.

Til máls tóku  allir fundarmenn.

 

            Fundargerð byggðarráðs 28.04.                       ( 152 )

Fundargerðin sem er í 11 liðum var samþykkt samhljóða.

Til máls tóku SE, BBÞ, JLE, ÞEG, ÞÞ, HJ, TJ, PSB.

 

            Fundargerð byggðarráðs 05.05.                        ( 153 )

Varðandi 1. lið, skólamál, var samþykkt samhljóða að framlengja tillögufrest í samkeppni um nafn á nýjan skóla og var sveitarstjóra falið að láta kynna samkeppnina.

3. liður, leigusamningur um beitiland, var samþykktur með 7 atkvæðum gegn 1 (FR).  1 (HJ) sat hjá.

Varðandi 6. lið, laun sveitarstjórnar og nefnda, var lögð fram tillaga vinnuhóps um breytingu á launakjörum sveitarstjórnarmanna og fulltrúa í nefndum.   Tillagan var samþykkt samhljóða og tekur launalækkun sveitarstjórnar og byggðarráðs gildi frá 01. janúar 2010 en aðrir liðir taka gildi frá 01. janúar 2011.

  

Fundargerðin sem er í 15 liðum var að öðru leiti samþykkt samhljóða.   

Til máls tóku allir fundarmenn.

 

4.         Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar 04.05.        ( 67 )

Samþykkt var að vísa 4. lið, Dalsmynnisland, til byggðarráðs.

Samþykkt var að vísa 22. lið, aðalskipulag Eyja- og Miklaholtshrepps, til byggðarráðs.

Fundargerðin sem er í 25 liðum var að öðru leiti samþykkt samhljóða.

Til máls tóku allir fundarmenn.  

 

5.         Fundargerð fræðslunefndar 05.05.                         ( 65 )

Fundargerðin sem er í 7 liðum var samþykkt samhljóða.    

Til máls tóku BBÞ, TJ.

 

6.         Fundargerð félagsmálanefndar 28.04.                              ( 41 )

Fundargerðin sem er í 2 liðum var samþykkt samhljóða.

Til máls tóku JLE, PSB.

 

7.         Fundargerð umhverfis- og landbúnaðarnefndar 05.05.       ( 26 )

Samþykkt var að vísa 13. lið, aðalskipulag Eyja- og Miklaholtshrepps, til byggðarráðs.

Fundargerðin sem er í 15 liðum var að öðru leiti samþykkt samhljóða.   

Til máls tóku allir fundarmenn.

 

 

 

Fleira ekki gert.

Fundargerðin upplesin og

samþykkt samhljóða.

 

Fundi slitið kl.  17,45.



Til baka