Tómstunda- og menningarnefnd, fundur nr. 5
Dags. 10.2.2010
Fundargerð
Tómstunda- og menningarnefnd 5. fundur
10. febrúar 2010 í ráðhúsi Borgarbyggðar
Miðvikudaginn 10. febrúar 2010 kom tómstunda- og menningarnefnd Borgarbyggðar saman til fundar kl. 15:30 að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.
Mætt voru: Ásdís Helga Bjarnadóttir, Jónína Erna Arnardóttir, Magnús Þorgrímsson, Björn Bjarki Þorsteinsson og Unnsteinn Elíasson. Einnig sat Indriði Jósafatsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fundinn. Sólrún Halla Bjarnadóttir kom inn á fundinn undir lið 7.
Dagskrá
1. Fjárhagsáætlun 06 – 2010
Fjárhagsáætlun lögð fram. Nefndin þakkar starfsmönnum nefndarinnar þá miklu vinnu sem fram hefur farið á undanförnum vikum og mánuðum við endurskipulagningu á rekstri málaflokkana.
2. Starfsáætlanir 2010 - Drög
Drög af stafsáætlunum lagðar fram.
3. Endurskoðun forvarnarstefnu Borgarbyggðar
Endurskoðuð forvarnarstefna lögð fram.
4. Gestatölur íþróttamannvirkja 2009
Gestafjöldi í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi var um 147.000 manns á síðasta ári, í Íþróttamiðstöðinni Varmalandi um 22.000 manns og álíka fjöldi í Íþróttamiðstöðinni Kleppjárnsreykjum.
5. Akstursstyrkir.
Rætt um akstursstyrki.
6. Íþróttamaður Borgarbyggðar 2009
Tilnefnd eru:
Hestamennska
Konráð Axel Gylfason– Hestamannafélaginu Faxa er hestamaður ársins.
Frjálsar íþróttir
Sigmar Aron Ómarsson – Umf. Íslendingi
Helgi Guðjónsson – Umf. Reykdælum
Tómstunda- og menningarnefnd velur Sigmar Aron Ómarsson frjálsíþróttamann ársins.
Blak
Anna Sigríður Hauksdóttir - Umf. Íslendingi er blakmaður ársins.
Körfuknattleikur
Trausti Eiríksson – Ungmennafélagi Skallagríms
Karval Karvelsson - Ungmennafélagi Reykdæla
Tómstunda- og mennignarnefnd velur Trausta Eiríksson körfuknattleiksmann ársins.
Badminton
Arnór Tumi Finnsson – Umf. Skallagrím er badmintonmaður ársins
Golf
Bjarki Pétursson Golfklúbbi Borgarness er golfari ársins.
Knattspyrna
Dawid Mikolaj Dabrovski – Umf. Skallagrím.
Anton Freyr Arnarsson – Umf. Íslending
Tómstunda- og menningarnefnd velur Dawid Mikolaj Dabrovski knattspyrnumann ársins.
Sund
Jón Ingi Sigurðsson - Umf. Skallagrím
Helgi Guðjónsson – Umf. Reykdæla
Tómsunda- og menningarnefnd velur Jón Inga Sigurðsson sundmann ársins
Úr þessum ágætu tilnefningum útnefndi tómstunda- og menningarnefnd Borgarbyggðar Trausta Eiríksson Íþróttamann Borgarbyggðar árið 2009
Ákveðið að heiðra landsliðsfólk sem valið var í landslið á síðasta ári.
Bjarki Pétursson – Unglingalandslið U15 í golfi.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir – A- landslið kvenna í körfuknattleik.
Tinna Kristín Finnbogadóttir – Unglingalandsliðssæti í skák.
Hulda Rún Finnbogadóttir. – Unglingalandsliðssæti í skák.
Trausti Eiríksson – Unglingalandslið í U18 í körfuknattleik.
Sigurður Þórarinsson – Unglingalandslið í U18 í körfuknattleik.
Sigmar Aron Ómarsson – Úrvalshóp DÍ sem er landslið dansara.
Tómstundanefnd hefur ákveðið að heiðra við þetta tilefni Þorvald Jónsson frá Brekkukoti fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþrótta- og æskulýðsmála um langt árabil í héraðinu.
Afhending viðurkenninga verður við hátíðlega athöfn í Íþróttamiðstöðinni Borgarnesi föstudagskvöldið 12. feb. kl. 20.00
7. Kynning á virknikönnun sem Sólrún Halla gerði hér í starfsnámi.
Sólrún Halla kynnti virknikönnun sína sem hún gerði í starfsnámi sínu hér.
8. Unglingalandsmót UMFÍ Borgarnesi 2010
Rætt var um unglingalandsmót og undirbúning þess.
Rætt um að næsti fundur verði mánudaginn 8. mars kl. 15.00
Fleira ekki gert. Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl.17.30.
Fundargerð: ij
Til baka