Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd, fundur nr. 12

Dags. 3.12.2008

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd

12. fundargerð

Fundur var haldinn í umhverfis- og landbúnaðarnefnd,

miðvikudaginn 3. desember 2008 kl. 17:00

í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi.

 

 

Mætt voru:

 

Aðalmenn:

Ingibjörg Daníelsdóttir, formaður

Guðrún Fjeldsted

Jenný Lind Egilsdóttir

Kristján Magnússon

Sigrún Ólafsdóttir

Sigurður Helgason

 

Varamenn:

Guðmundur Hallgrímsson

 

Starfsmenn nefndarinnar:

Björg Gunnarsdóttir, umhverfis- og kynningarfulltrúi, ritaði fundargerð.

Sigurjón Jóhannsson, dreifbýlisfulltrúi.

Þórvör Embla Guðmundsdóttir, dreifbýlisfulltrúi.

 

 

1.   Framkvæmd Búfjáreftirlits.

      Á fundinn mættu þau Sigríður Jóhannesdóttir og Anton Torfi 

      Bergsson frá Búnaðarsamtökum Vesturlands.

      Þau greindu frá stöðu mála í sveitarfélaginu varðandi eftirlit með 

      fóðrun og umhirðu búfjár.   

 

2.   Gjaldskrá vegna búfjáreftirlits.

      Lögð fram drög að gjaldskrá.

      Nefndin samþykkir drögin með viðbættri einn grein sem verður þá  

      grein nr. 3 og hækkar númer eftirfarandi greina í samráði við það.

      Viðbótargreinin hljóðar svo ,,Gjald vegna handsömunar á fé sbr. 10.

      grein laga nr. 103/2002 um búfjárhald og fleira, á tímabilinu 15.

      desember ti 30. apríl, skal miðast við tímaeiningu. Gjald á tímaeiningu

      sem er ein klst. er kr. 2.500 auk aksturskostnaðar".  

 

3.   Fjárhagsáætlun 2009

      Ný drög að áætlun lögð fram.

      Nefndin samþykkir drögin þrátt fyrir að þau komi harkalega niður á   

      umhirðu vissra svæða. Einnig bendir hún á að mikill niðurskurður er í

      refa- og minkaeyðingu frá því sem var þegar sveitarfélögin voru 12

      sem nú mynda Borgarbyggð.

 

     Guðrún Fjeldsted og Kristján Magnússon létu bóka eftirfarandi: ,,Við

     ýsum óánægju okkar með að fækkað verði UogL nefnd sem var 

     sameinuð úr tveimur nefndum í upphafi árs. Við fækkun í nefndinni er

     hætta á að sjónarmið íbúa í þessu stóra sveitarfélagi komi ekki

     nægjanlega skýrt fram.

 

4.   Hunda- og kattasamþykkt Borgarbyggðar.

      Lögð fram drög að breyttri hunda- og kattasamþykkt miðað við

      umræður á síðasta fundi nefndarinnar.

      Nefndin frestar afgreiðslu enn um sinn. Kristjáni Magnússyni, Þórvöru  

      Emblu Guðmundóttur og Björgu Gunnarsdóttur falið að vinna í

      samþykktinni miðað við umræður á fundinum og senda

      nefndarmönnum fyrir 20. janúar 2009.

 

5.   Landskipti.

      Framlagt bréf, dagssett 12.11.2008 frá Magnúsi Skúlasyni og 

      Kolfinnu Jóhnnesdóttur, Norðtungu þar sem óskað er eftir að

      nokkrar spildur úr landi Norðtungu verði gerðar að séreign.

      Landnotkun verður óbreytt. Jafnframt er óskað eftir umsögn

      vegna breytinga á heimreið. Erindinu var vísað til Umhverfis-

      og landbúnaðarnefndar á 95. fundi byggðarráðs 19. nóvember

      2008.

      Bæði erindin samþykkt en nefndin lýsir vilja sínum um að landið  

      verði áfram hæft til landbúnaðarnota.     

 

6.   Landskipti.

      Lagt fram bréf dagssett 17.11.2008 frá Skarphéðni Péturssyni 

      hdl. Þar sem óskað er eftir að spilda úr landi Smiðjuhóls í

      Borgarbyggð verði gerði að séreign. Erindinu var vísað til

      Umhverfis- og landbúnaðarnefndar á 96. fundi byggðarráðs

      19. nóvember. 2008.

      Nefndin leggst ekki gegn fyrirhuguðum  landskiptum. Nefndin bendir á

      að gögnin hefðu mátt vera skýrari hvað varðar landamerki.

 

7.   Litla-Hraun, veglagning.

      Þorgrímur og Steingrímur Leifssynir f.h. landeiganda sækja   

      um leyfi til framkvæmda við vegalagningu frá línuvegi í landi

      Snorrastaða að Litla-Hrauni.

      Þar sem Eldborgarhraun er á náttúruminjaskrá og jarðmyndun nýtur

      sérstakrar verndar samkvæmt lögum um nátttúruvernd er óskað eftir

      umsögn Umhverfisstofnunar. Einnig er óskað eftir umsögn

      Fornleifaverndar ríkisns vegna hugsanlegra fornminja á svæðinu.

      Nefndin bendir þó á að eðlilegt þykir að vegur liggi að lögbýli.

 

8.   Brekkuland/Hraunbær, skipting lands.

      Hönnuður fyrir hönd landeiganda óskar eftir heimild til að 

      skipta frístundalóð út úr íbúðarhúslóðinni, samkvæmt

      meðfylgjandi afstöðumynd frá Landlínum.

      Samþykkt.

 

9.   Umsóknir um styrki.

      Ákveðið að sækja um þrjá styrki í þrjá sjóði vegna verkefna á næsta

      ári.

 

      Guðrún Fjeldsted yfirgefur fund kl. 20:00

      Sigrún Ólafsdóttir yfirgefur fund kl. 20:04

 

10.  Bændur græða landið.

       Framlagt bréf dagsett 24.11. 2008 frá Landgræðslu ríkisins 

       þar sem óskað er eftir stuðningi við verkefnið “Bændur

       græða landið”. Erindinu var vísað til umhverfis- og

       landbúnaðarnefndar á 97. fundi byggðarráðs 3. desember.

       2008.

       Nefndin tekur jákvætt í erindið.

 

11.   Önnur mál.

        a) Þar sem allt útlit er fyrir að þetta sé síðasti fundur Sigurjóns

            Jóhannssonar, dreifbýlisfulltrúa vill nefndin nota tækifærið til að 

            þakka honum fyrir gott samstarf og óska honum velfarnaðar á

            komandi árum.

        b) Rætt var um efnisval við framkvæmdir á ferðamannastöðum.

 

 

Fundi slitið kl. 20:20.



Til baka