Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd, fundur nr. 20

Dags. 7.10.2009

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd

20. fundargerð

Fundur var haldinn í umhverfis- og landbúnaðarnefnd,

miðvikudaginn 7. október 2009 kl. 18:00 í ráðhúsi Borgarbyggðar,

Borgarbraut 14, Borgarnesi.

 

 

 

Mætt voru:

 

Aðalmenn:

Ingibjörg Daníelsdóttir, formaður

Jenný Lind Egilsdóttir

Kristján Magnússon

Pálmi Þór Sævarsson

 

Starfsmenn nefndarinnar:

Björg Gunnarsdóttir, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi, ritaði fundargerð.

Jökull Helgason, forstöðumaður framkvæmdasviðs.

              

 

1.  Merking gamalla húsa.

     Staða mála kynnt.

 

2.  Aðgerðir vegna óskráðra gæludýra.

     Rætt um viðbrögð við kvörtunum vegna hunda og katta.

     Nefndin telur nauðsynlegt að fara í átak í að handsama óskráða hunda

     og ketti. Ákveðið að senda út frétt til að kynna það.

 

3.  Umhverfisþing 2009.                                                        

     Framlagt bréf umhverfisráðherra um Umhverfisþing sem 

     haldið verður 9. – 10. október 2009.  Sérstaklega er vænst

     þátttöku frá sveitarfélögum og þátttöku ungs fólks. Erindinu

     var vísað til Umhverfis- og landbúnaðarnefndar á 131. fundi

     byggðarráðs 7. október 2009.

 

4.  Ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúrverndanefnda.

     Lagt fram fundarboð.

 

5.  Fjárhagsáætlun.

     Lagður fram rammi vegna fjárhagsáætlunar 2010.

     Nefndin tekur hana betur fyrir á næsta fundi sínum í nóvember þegar

     ljóst verður hvernig fjármagnið skiptist niður á deildir innan málaflokka.

 

6.  Styrkir.

     Rætt um styrkumsóknir til nokkura sjóða vegna verkefna sem

     hugmyndir eru um að fara í á næsta ári.

 

7.  Vetrarveiði á ref.

     Framlagt uppgjör vegna veiðitímabilsins 1. september 2008 –

     31. ágúst 2009.

     Rætt var almennt um þann skort sem er á fjármagni til þessa

     málaflokks og hvernig haga beri vetrarveiði fram að áramótum. Björgu

     og Jökli falið að kalla veiðimenn saman til fundar um vetrarveiðina um

     leið og ljóst er hversu miklu fé verði hægt að verja til veiði á næsta ári.

     Nefndin leggur áherslu á vetrarveiði umfram grenjaleit líkt og var á

     þessu ári.

     Einnig ræddi nefndin nauðsyn þess að skoða nýjar leiðir til að

     fjármagna veiðina.

 

8.  Atvinnuátaksverkefni á skógarsvæðum í Borgarbyggð.

     Þriggja mánaða (20 mannmánuðir) atvinnuátkaksverkefni við

     Hraunfossa, í Einkunnum, Daníelslundi og Reykholti í

     Borgarbyggð er lokið og lagt er fram  uppgjör við

     Vinnumálastofnun vegna þess. Að verkefninu stóðu

     Borgarbyggð, Vinnumálastofnun, Skógræktarfélag Íslands,

     Samgönguráðuneytið og Skógræktarfélag Borgarfjarðar. Auk

     þess komu styrkir frá Menningarráði Vesturlands í

     fræðslurjóðrið í Einkunnum og frá Ferðamálastofu til

     stígagerðar í Einkunnum.

     Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi kynnti hvað hefur verið framkvæmt

     á hverjum þessara staða fyrir sig.

 

9.  Atvinnuátaksverkefni við Hlíðartúnshúsin í Borgarbyggð.

     Forstöðumaður framkvæmdasviðs kynnti hvað hefur verið framkvæmt

     við Hlíðartúnshúsin í Borgarnesi.

 

10. Sorphirða.

      Lagðar fram upplýsingar um núvrandi kostnað vegna

      sorphirðu í Borgarbyggð og gróf áætlun um hver kostnaðurinn

      gæti orðið við gerð nýs samnings miðað við nokkrar útfærslur

      við framkvæmd sorphirðunnar.    

      Ræddar hugmyndir um breytingar á sorphirðu samhliða vinnu við

      útboð. Nefndin leggur til að stefnt verði að því að fækka

      sorphirðudögum í þéttbýli þannig að hreinsað verði hálfsmánaðarlega,

      hreinsunarátak í dreifbýli verði annað hvert ár, rúlluplast verði sótt

      tvisvar á ári.          

 

11. Landskipti - Kolsstaðir.

      Framlagt erindi dagsett 03.09.2009 frá Lúmex og Félagi

      sumarhúsaeigenda að Kolsstöðum um skiptingu jarðarinnar að

      Kolsstöðum í Hvítársíðu. Erindinu var vístað til umhverfis- og

      landbúnaðarnefndar á 128. fundi byggðarráðs þann 15.

      september 2009.

      Samþykkt.

 

12.  Deildartunga 1 – Breytt landnotkun.

       Vegna mögulegrar uppbyggingar á miðaldaböðum við

       Deildartunguhver er óskað eftir því að landnotkun þess lands

       úr landi Deildartungu 2, sem afmarkað er á meðfylgjandi

       loftmyndum verði skilgreint fyrir verslun og þjónustu í

       aðalskipulagi.

       Samþykkt.

 

13.  Deildartunga 2 – Breytt landnotkun.

       Vegna mögulegrar uppbyggingar á miðaldaböðum við

       Deildartunguhver er óskað eftir því að landnotkun þess lands

       úr landi Deildartungu 2, sem afmarkað er á meðfylgjandi

       loftmyndum verði skilgreint fyrir verslun og þjónustu í

       aðalskipulagi.

       Samþykkt.

 

14.  Grjóteyri / Ytri-Skeljabrekka – endurnýjun.

       Anna Níelsen fyrir hönd HAB sækir um leyfi til framkvæmda

       við endurnýjun aðveituæðar fyrirtækisins frá dælustöð á

       Grjóteyri að stállögn í landi Ytri-Skeljabrekku.

       Samþykkt.

 

15.  Hálsasveitarvegur – Kaldadalsvegur

       Lagt fram minnisblað dagsett 22. september 2009 vegna

       tilkynningar til ákvörðunar um matsskyldu.

       Nefndin gerir ekki athugasemdir við framlagt minniblað.

 

16.  Önnur mál.

       Jökull Helgason kynnir lækkun yfirvinnu starfsmanna og óskar eftir

       að nefndin reyni að breyta fundartíma sínum þannig að fundað sé á

       dagvinnutíma.

 

 

Fundi slitið kl. 19:40

 



Til baka