24. ágúst, 2026
Fréttir

Borgarbyggð, í samstarfi við Veitur og RARIK, hófu í dag framkvæmdir í Bröttugötu. Þar sem lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu verða endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði götu og gangstétta.

Unnið verður á milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu og er gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki 30. október nk.

Hjáleiðir verða settar upp þar sem það á við, en ljóst er að bílar munu ekki komast að öllum húsum allan tímann. Aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda verður tryggt eins og kostur er á framkvæmdatíma.
Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks og er mikilvægt að láta vita ef öryggi við vinnusvæðið er ábótavant.
Með framkvæmdunum er ráðist í endurnýjun mikilvægra innviða til hagsbóta fyrir íbúa og samfélagið í heild. Við þökkum íbúum og öðrum vegfarendum fyrir sýnda þolinmæði meðan á framkvæmdum stendur.

Brattagata í Borgarnesi

Brattagata í Borgarnesi

 

Tengdar fréttir

9. október, 2026
Fréttir

Framkvæmdir við Kveldúlfsgötu 24-30

Borgarbyggð vekur athygli á framkvæmdum fyrir framan fjölbýlishús við Kveldúlfsgötu 24-30 og við opið leiksvæði barna. Verkið felur meðal annars í sér úrbætur á umferðaröryggi, stígagerð, uppsetningu girðinga, hellulagnir og annan frágang á svæðinu. Áætlað er að framkvæmdum ljúki innan 4 vikna. Á meðan á verkinu stendur geta orðið tímabundnar truflanir á umferð og aðgengi á svæðinu. Íbúar og aðrir …

6. október, 2026
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar 2026

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitti í morgun árlegar viðurkenningar til einstaklinga og fyrirtækja sem skara fram úr í umhirðu og fegrun umhverfis í sveitarfélaginu. Nefndin veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir með því markmiði að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og stuðla að jákvæðu og samheldnu …