Borgarbyggð í samstarfi við Veitur og Rarik hefja í júní framkvæmdir í Bröttugötu. Þar verða lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði á götu og gangstéttum.
Áætlað er að vinna hefjist í júní eftir að skóla lýkur og unnið á milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu. Gert er ráð fyrir að vinnu ljúki í október á þessu ári.
Hjáleiðir verða settar upp þar sem það á við, en ljóst að bílar munu ekki komast að öllum húsum allan tímann. Aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda verða tryggðar á framkvæmdatíma.
Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks og brýnt að láta vita ef öryggi við vinnusvæðið er ábótavant.
Við endurnýjum nauðsynlega innviði í sameiningu, íbúum og samfélagi í hag og þökkum sýnda þolinmæði.
Tengdar fréttir

6. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar
6. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar fer fram í fundarsalnum Borg í ráðhúsi Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, fimmtudaginn 12. nóvember nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: 6. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar Streymi frá fundinum má finna hér.

Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Borgarbyggð
Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Borgarbyggð yrði sem hér segir: 23. nóv í áhaldahúsi að Sólbakka 4 Fyrir hunda kl. 16:30 19:00. Fyrir ketti kl. 19:15 – 20:15. 24. nóv Hvanneyri í „gamla BÚT-húsinu“ kl. 16:30 – 19:00. 2. des í áhaldahúsi að Sólbakka 4 kl. 17:00 – 19:00. Nánari upplýsingar um dýrahald má finna hér Þjónustan er gjaldfrjáls fyrir þá sem hafa …