Borgarbyggð tilkynnir að jarðvegsrannsóknir muni fara fram á svæðinu við hlið íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi dagana 15.–16. júní, í tengslum við undirbúning fyrirhugaðra framkvæmda við Þorsteinsgötu 1-3.
Rannsóknirnar fela í sér boranir og mælingar á jarðvegi. Á meðan framkvæmdum stendur má búast við tímabundnum truflunum, svo sem hávaða og aukinni umferð vinnuvéla.
Borgarbyggð biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks og brýnt að láta vita ef öryggi við vinnusvæðið er ábótavant.
Nánari upplýsingar veitir:
framkvaemdir@borgarbyggd.is
Tengdar fréttir

Nýr skipulagsfulltrúi
Ásgerður Hafdís Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin í starf skipulagsfulltrúa Borgarbyggðar. Ásgerður er menntaður byggingarfræðingur frá Horsens í Danmörku og er að ljúka meistaragráðu í skipulagsfræði frá landbúnaðarháskóla Íslands. Ásgerður er með góða reynslu af störfum tengdum skipulagsmálum og opinberri stjórnsýslu. Hún hefur tekið þátt í og átt frumkvæði að innleiðingu verkefna tengt skipulagsmálum. Hún hefur t.a.m komið að endurskoðun aðalskipulags, …

Pourquoi Pas? 90 ára ártíð
Í september eru liðin 90 ár frá því franska rannsóknarskipið Pourquoi Pas? fórst við Mýrar árið 1936. Strandið markaði djúp spor í samfélagið á Mýrum. Af því tilefni verður efnt til minningardagskrár miðvikudaginn 16. september. Þar verður sagan rifjuð upp og minning skipsins, áhafnar þess og Íslandsvinarins Jean-Baptiste Charcot höfð í heiðri. Um leið og sjónum verður beint að tengslum …