21. ágúst, 2026
Fréttir
Nýjar vatnsrennibrautir við sundlaugina í Borgarnesi voru vígðar í gær við mikinn fögnuð sundlaugargesta. Fulltrúar í sveitarstjórn stýrðu vígsluathöfninni ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra.
Framkvæmdir á endurnýjun rennibrautanna hófust í júní síðastliðnum, en þær gömlu höfðu þá þjónað landanum og gestum í nær 30 ár.Framkvæmdirnar drógust nokkuð á langinn og því hafði eftirvæntingin verið mikil. Það mátti svo sannarlega sjá í gær þegar stöðugt streymi var í nýju rennibrautirnar frá því þær voru opnaðar.

Ljóst er að nýju rennibrautirnar eiga eftir að gleðja sundlaugargesti um ókomin ár.

Tengdar fréttir

9. október, 2026
Fréttir

Framkvæmdir við Kveldúlfsgötu 24-30

Borgarbyggð vekur athygli á framkvæmdum fyrir framan fjölbýlishús við Kveldúlfsgötu 24-30 og við opið leiksvæði barna. Verkið felur meðal annars í sér úrbætur á umferðaröryggi, stígagerð, uppsetningu girðinga, hellulagnir og annan frágang á svæðinu. Áætlað er að framkvæmdum ljúki innan 4 vikna. Á meðan á verkinu stendur geta orðið tímabundnar truflanir á umferð og aðgengi á svæðinu. Íbúar og aðrir …

6. október, 2026
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar 2026

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitti í morgun árlegar viðurkenningar til einstaklinga og fyrirtækja sem skara fram úr í umhirðu og fegrun umhverfis í sveitarfélaginu. Nefndin veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir með því markmiði að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og stuðla að jákvæðu og samheldnu …