Fara í efni

Byggðarráð Borgarbyggðar

187. fundur 28. mars 2011 kl. 19:30 - 19:30 Eldri-fundur
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 187 Dags : 28.03.2011
Mætt voru:
Aðalfulltrúar: Bjarki Þorsteinsson
Finnbogi Leifsson
Ingibjörg Daníelsdóttir
Áheyrnarfulltrúi: Geirlaug Jóhannsdóttir
Sveitarstjóri: Páll S. Brynjarsson
Skrifstofustjóri: Eiríkur Ólafsson sem ritaði fundargerð
Eftirfarandi var tekið fyrir:
1. Málefni Orkuveitu Reykjavíkur
Rætt var um málefni Orkuveitu Reykjavíkur og svohljóðandi tillaga samþykkt samhljóða:
"Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir fyrirliggjandi aðgerðaráætlun Orkuveitu Reykjavíkur sem samþykkt var á fundi stjórnar OR 23.03.2011 með fyrirvara um að Borgarbyggð geti lagt fyrirtækinu til 75 milljónir króna á árinu 2011 þar sem handbært fé er ekki til staðar."
Samþykkt var að fela sveitarstjóra að vinna áfram að málinu.
Fleira ekki gert.
Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 19,45