Byggðarráð Borgarbyggðar
1.Dómur Héraðsdóms varðandi lán
1205119
2.Framvindunarskýrsla 03, maí 2012
1206001
Framlögð framvinduskýrsla um byggingu hjúkrunarheimilis við Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.
3.Fundarboð á aðalfund OR 2012.
1205146
Framlagt fundarboð á aðalfund Orkuveitu Reykjavíkur sem haldinn verður fimmtudaginn 14. júní n.k. í Reykjavík.
4.Girðing milli Tungulækjar og Einkunna meðfram Háfslæknum
1206010
Framlagt erindi Bjargar Gunnarsdóttur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa varðandi girðingu á milli Tungulækjar og Einkunna.
Girðingin er um 2 km löng og verður meðfram Háfslæknum.
Samþykkt að farið verði í þetta verk en óskað eftir endurskoðaðri kostnaðaráætlun.
Einnig var rætt um beiðni landeiganda á Gilsbakka um girðingu afréttarlands.
Byggðarráð leggur áherslu á að afstaða ríkisins um kostnaðarþátttöku liggi fyrir áður en tekin verður ákvörðun um framkvæmdir.
5.Gjaldtaka vegna framkvæmda
1205147
Framlagt bréf Vatnafélags Norðurár þar sem gagnrýnd er innheimta Borgarbyggðar á leyfisgjöldum fyrir framkvæmdaleyfi.
Samþykkt að fela umhverfis- og skipulagsnefnd að láta endurskoða gjaldskrá um gatnagerðar- og byggingaleyfisgjöld.
6.Gæludýraeftirlit Borgarbyggðar - Kostnaðarmat vegna tillögu um breytingar.
1206011
Framlagt erindi Bjargar Gunnarsdóttur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa varðandi breytingar á gæludýraeftirliti Borgarbyggðar.
Samþykkt að fela umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að afla upplýsinga um sambærilega starfsemi í öðrum sveitarfélögum.
7.Starfsmannamál - Beiðni um leyfi
1205135
Tekin fyrir beiðni starfsmanns um ársleyfi frá störfum en erindinu var frestað á síðasta fundi byggðarráðs og óskað frekari upplýsinga.
Með vísan til reglna Sambands íslenskra sveitarfélaga um leyfisveitingar samþykkti byggðarráð að veita umbeðið leyfi.
8.Sala á Syðri-Hraundal
1206013
Á fundinn mætti Ingi Tryggvason hdl. til viðræðna um sölu á jörðinni Syðri-Hraundal sem er í eigu Borgarbyggðar.
Samþykkt að auglýsa jörðina til sölu í heilu lagi.
9.Krókur í Norðurárdal
1206012
Framlagt bréf frá Bjarna Ásgeirssyni hrl. f.h. Gunnars Jónssonar Króki varðandi eignarrétt á hluta af jörðinni Króki sem er í eigu Borgarbyggðar.
Byggðarráð samþykkti að fela Inga Tryggvasyni hdl að svara bréfritara.
10.Dagur íslenskrar náttúru 16. september 2012
1205145
Framlagt bréf Umhverfisráðuneytisins dags. 30.05."12 varðandi dag íslenskrar náttúru sem haldinn verður hátíðlegur 16. september n.k.
11.Borgarbraut 57
1206022
Rætt um stöðu mála varðandi fasteignina að Borgarbraut 57 í Borgarnesi.
12.Úrsögn úr nefndum
1206016
Framlagt bréf Eiríks Jónssonar dags. 05.06."12 þar sem hann óskar eftir að vera leystur frá störfum sem formaður tómstundanefndar og varamaður í sveitarstjórn vegna brottflutingins úr sveitarfélaginu.
Byggðarráð samþykkti erindið og þakkaði Eiríki störf í þágu sveitarfélagsins.
13.Hús Fígúru ehf í Englendingavík.
1206023
Rætt um eignarhald á húsum Fígúru ehf í Englendingavík.
Samþykkt að heimila sveitarstjóra að gefa út afsal vegna húsanna.
14.Breytingar á skipulagi íþróttamála í Borgarbyggð.
1205137
Framlagt bréf Ungmennasambands Borgarfjarðar dags. 06.06."12 þar sem óskað er eftir viðræðum um frekara samstarf við stefnumótun í íþróttamálum.
Samþykkt að leggja til við UMSB að skipaður verði sameiginlegur vinnuhópur um verkefnið.
15.Framkvæmdir 2012
1206021
Á fundinn mætti Jökull Helgason forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs og fór yfir aðkomu Borgarbyggðar að framkvæmdum við kirkjugarða í sveitarfélaginu árið 2012.
Rætt var um aðrar framkvæmdir hjá sveitarfélaginu í sumar s.s. stígagerð og ákveðið að lagfæra stíga um Vesturnes, í gegnum Vigdísarlund og hjá kirkjugarðinum í Borgarnesi.
Einnig var rætt um malbikunarframkvæmdir sem verið er að skoða hvort hægt sé að fara í og samþykkt að láta gera tillögu að endurskoðaðri framkvæmdaáætlun í tengslum við þær.
16.Framkvæmdir við gangstéttar í Stekkjarholti
1206025
Forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs gerði grein fyrir tilboðum sem bárust í gerð gangstétta við Stekkjarholt í Borgarnesi.
Tvö tilboð bárust í verkið.
Samþykkt var að taka tilboði frá lægstbjóðenda sem er JBH vélar í Borgarnesi.
17.Gatnagerð í Flatahverfi á Hvanneyri
1206024
Forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs kynnti tilboð í malbikun í Flatahverfi á Hvanneyri.
Tvö tilboð bárust í verkið.
Samþykkt var að taka tilboði frá lægstbjóðenda sem er Jörvi á Hvanneyri.
18.Fundargerð 797. fundar
1205144
19.Fundargerð 172. fundar 25. apríl 2012
1205143
Fundi slitið - kl. 08:00.
Framlagður dómur Héraðsdóms Vesturlands í máli Borgarbyggðar gegn Arion-banka varðandi eftirstöðvar lánssamnings.