Fara í efni

Byggðarráð Borgarbyggðar

413. fundur 27. apríl 2017 kl. 08:15 - 11:15 í fundarsal í ráðhúsi að Borgarbraut 14 í Borgarnesi
Nefndarmenn
  • Geirlaug Jóhannsdóttir formaður
  • Björn Bjarki Þorsteinsson varaformaður
  • Guðveig Eyglóardóttir aðalmaður
  • Ragnar Frank Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Kristján Gíslason
Dagskrá

1.Safnahús - Ársskýrsla 2016

1703094

Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarðar mætti til fundarins. Hún sagði frá námsferð sem hún fór í nýverið til Þýskalands.Ennfremur sagði hún frá því sem um er að vera í Safnahúsi um þessar undir. Byggðarráð þakkar Guðrúnu yfirferðina.

2.Loftorka ehf., viðræður um lóð

1703127

Ólafur Sveinsson, stjórnarformaður Loftorku og Andrés Konráðsson framkvæmdastjóri mættu til fundarins. Rætt var m.a. um lóð Loftorku við Engjaás, lóð við Kveldúlfsgötu 29 og geymslusvæði við Bjarnhóla.
Byggðarráð samþykkir að vísa umsókn um stækkun lóðar til umhverfis - skipulags - og landbúnaðarnefndar.

3.150 ára verslunarafmæli Borgarness

1701152

Dagskrá laugardagsins yfirfarin og rædd.

4.Hnoðraból - leikskóli á Kleppjárnsreykjum

1704206

Framlögð teikning frá Pro Ark teiknistofu af væntanlegum byggingarframkvæmdum á Kleppjárnsreykjum. Byggðarráð ræddi framlagða teikningu og bókaði eftirfarandi: "Byggðarráð samþykkir að áfram verði unnið á grunni teikningar sem merkt er nr. 3 en þar er miðað við 340 fm. viðbyggingu sem rúmast innan fjárhagsáætlana" Byggðarráð samþykkir ennfremur að skipa í byggingarnefnd á næsta fundi. Sveitarstjóra falið að gera erindisbréf fyrir nefndina.

5.Arðgreiðsla 2017

1704200

Framlagt bréf Lánasjóðs sveitarfélaga ohf þar sem tilkynnt er um arðgreiðslu vegna ársins 2016 að upphæð kr. 6.995.768 að frádregnum fjármagnstekjuskatti.

6.Kveldúlfsgata 29 - umsókn um lóð

1704190

Framlögð umsókn Ámunda Sigurðssonar, kt. 1108572689, til heimilis að Þórunnargötu 1, Borgarnesi, dags. 21. apríl sl. um lóð undir fjölbýlishús að Kveldúlfsgötu 29. Afgreiðslu frestað og sveitarstjóra falið að kanna stöðu lóðar m.t.t. fyrri úthlutunar og skipulagsskilmála.

7.Brákarsund, úthlutun lóða - andmæli

1704202

Framlagt bréf frá Sigursteini Sigurðssyni arkitekt FAÍ dags. 19.4.2017 þar sem mótmælt er úthlutun lóða við Brákarsund.
Sveitarstjóra falið að taka saman upplýsingar um stöðu skipulagsmála á svæðinu.

8.Brákarsund 1-3, úthlutun lóða - andmæli

1704204

Framlagt bréf Landnámseturs Íslands ehf og Egils guesthouse/Kaffi Brák þar sem mótmælt er úthlutun lóða við Brákarsund 1 og 3.

9.Háreksstaðir lnr. 134769 - stofnun lóðar, Háreksstaðapartur

1704167

Framlögð umsókn Guðmundar Finnssonar, kt. 280750-4339, til heimilis að Grenihlíð 5, Varmalandi, 311 Borgarnes, um stofnun lóðar úr landi Háreksstaða í Norðurárdal - Háreksstaðapartur. BYggðarráð samþykkti umsóknina.

10.Hraundalsvegur, beiðni um úrbætur

1704199

Framlagt erindi ásamt myndum dags. 21. apríl 2017, frá Ásgeiri Helgasyni f.h. Félags sumarhúsaeigenda í Syðri Hraundal (FSSH), vegna lélegs ástands vegar sem liggur í gegn um sumarhúsahverfið. Sveitarstjóra falið að svara bréfritara.

11.Fundargerðir 242. og 243. funda stjórna Orkuveitu Reykjavíkur

1704210

Framlagðar fundargerðir funda nr. 242 og 243 frá stjórn Orkuveitu Reykjavíkur.

12.Verkís hf - samningur um tímabundna verkstjórn

1704220

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við Verkfræðistofuna Verkís hf. um tímabundna verkstjórn Gísla Karels Halldórssonar á umhverfis - skipulags - og umhverfissviði.

Fundi slitið - kl. 11:15.