Fara í efni

Byggðarráð Borgarbyggðar

429. fundur 04. október 2017 kl. 18:00 - 19:10 í fundarsal í ráðhúsi að Borgarbraut 14 í Borgarnesi
Nefndarmenn
  • Geirlaug Jóhannsdóttir formaður
  • Björn Bjarki Þorsteinsson varaformaður
  • Guðveig Eyglóardóttir aðalmaður
  • Ragnar Frank Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Kristján Gíslason
Dagskrá

1.Beiðni um fund v. málefni FEBBN.

1709057

Til fundarins mættu fulltrúar stjórnar Félags eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni. Mætt voru Guðrún María Harðardóttir, Vigdís Pálsdóttir og Sigurður Helgason. Þau reifuðu þær áherslur sem eru í starfi félagsins varðandi starfsemi þess og þarfir félagsmanna.

2.Grafarland lnr. 134336 - stofnun lóðar v. vegstæði

1709121

Framlögð ódagsett umsókn Þorgríms Þórs Þorgrímssonar um stofnun nýrrar lóðar í landi Grafarlands lnr. 134336 fyrir vegsvæði fyrir þjóðveg.
Byggðarráð samþykkti umsóknina.

3.Samrunaskjal lóða - Móar, Hali og Skógarkot lnr. 219170

1709107

Framlagt samrunaskjal lóðanna Hala, Skógarkots og Móa, dags. 18. Sept. 2017, sem sameinast undir landnúmeri Skógarkots 219270. Byggðarráð samþykkti erindið.

4.Fjallskilagjöld jarðarinnar Kletts í Reykholtsdal - mótmæli

1709116

Framlagt bréf Hermanns Sveinbjörnssonar, Kjartansgötu 7, 105, Reykjavík f.h. eigenda Kletts í Reykholtsdal, dags. 27. Sept. 2017, þar sem mótmælt er álagningu fjallskila á jörðina. Byggðarráð fól sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að fara yfir erindið og svara því.

5.Tilkynning og beiðni um gögn v. Hús & lóðir ehf.

1708040

Framlögð afgreiðsla Samgöngu - og sveitarstjórnarráðuneytis dags. 27.9.2017 vegna erindis Guðsteins Einarssonar varðandi samning um fyrirkomulag á greiðslu gatnagerðargjalda vegna Borgarbrautar 57 - 59. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Niðurstaða ráðuneytisins er að erindið sé ekki tækt til kærumeðferðar.Ráðuneytið mun hins vegar kanna hvort eigi að taka erindið til skoðunar sem frumkvæðismál með hliðsjón af ákvæðum 112. gr. sveitarstjórnarlaga. Niðurstaða úr þeirri skoðun liggur ekki fyrir.

6.Minnkun plasts í Borgarbyggð

1710005

Framlagt minnisblað/bréf Bjarkar Jóhannsdóttur og Hrafnhildar Tryggvadóttur, dags. 29. september 2017, um næstu skref í minnkun plasts í Borgarbyggð. Byggðarráð þakkaði minnisblaðið og væntir góðs af áframhaldandi vinnu.

7.Náms- og kynnisferð starfsfólks íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi

1702110

Framlögð skýrsla starfsfólks Íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi vegna náms - og kynnisferðar til Brighton í Englandi dagana 1. ? 4. maí s.l. Byggðarráð þakkaði skýrsluna og leggur áherslu á að sú þekking sem aflað er í kynnisferðum sem þessum sé nýtt til framþróunar í starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar.

8.Tilkynning um stjórnsýslukæru nr.93/2017. - Egilsgata 6.

1708122

Framlagt til kynningar bréf Ómars Karls Jóhannessonar hdl hjá Pacta lögmönnum til Úrskurðarnefndar upplýsinga og auðlindamála, dags 29. sept. 2017, vegna stjórnsýslukæru nr. 93/2017 varðandi Egilsgötu 6.

9.Umferðaröryggi í Arnarkletti

1710008

Framlagt bréf Sölva G. Gylfasonar, dags. 2.10. 2017, þar sem vakin er athygli á hættulegri beygju neðarlega í Arnarkletti. Byggðarráð vísaði erindinu til framkvæmda - og skipulagssviðs til tafarlausrar úrvinnslu. Byggðarráð þakkar bréfritara erindið.

10.Fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur 26.09.2017

1709122

Framlögð fundargerð OR dags. 26.09.2017

11.Fundargerð 397. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands

1710006

Framlögð fundargerð 397. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 30. sept s.l.

12.Upplýsinga - og lýðræðisnefnd - fundargerðir 2017

1708061

Framlögð fundargerð 3. fundar Upplýsinga - og lýðræðisnefndar frá 2.10.2017 ásamt verkefnistillögu frá Ildi.
Byggðarráð samþykkir að nefndin fái heimild til að gangaa til samninga við Ildi ehf. á grundvelli fyrirliggjandi verkefnistillögu.

Fundi slitið - kl. 19:10.