Byggðarráð Borgarbyggðar
Dagskrá
1.Byggingarnefnd Hnoðrabóls á Kleppjárnsreykjum
1705010
Umræður um hlutverk byggingarnefndar og erindisbréf. Sviðsstjóra framkvæmda - og skipulagssviðs og sveitarstjóra falið að endurskoða erindisbréfið. Skipað verður í nefndina á næsta sveitarstjórnarfundi og erindisbréfið lagt fram.
2.Viðbygging Grunnskólans í Borgarnesi - áætlanir
1705163
Staða framkvæmda við Grunnskólann í Borgarnesi. Lögð fram fundargerð frá fundi byggingarnefndar frá 4. september þar sem farið var yfir stöðu framkvæmda, samþykkt aukaverk og lýst því sem framundan er. Skv. áætlun verður mötuneytið tilbúið fyrir næsta skólaár. Byggðarráð lýsir ánægju með framgang verksins og þakkar starfsfólki skólans fyrir jákvæð og lausnamiðuð viðhorf í því umróti sem óhjákvæmilega fylgir slíkri framkvæmd.
3.Tillögur starfshóps og ósk ráðherra um samstarf
1808191
Framlagt bréf menntamálaráðherra og skýrsla starfahóps, dags. 22. ágúst 2018, um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta - og æskulýðsstarfi. Byggðarráð lýsir ánægju sinni með tillögur starfshópsins og telur nauðsynlegt að tryggt sé að unnið sé eftir því vinnulagi sem lýst er í bréfinu innan íþrótta- og æskulýðsstarfs í Borgarbyggð. Bréfinu og skýrslunni vísað til fræðslunefndar.
4.Grímshús - tilboð
1808190
Framlagt til kynningar bréf Sigvalda Arasonar, dags. 28, ágúst 2018, þar sem hann óskar eftir því að kaupa Grímshús eða leigja það til næstu 25 ára. Samþykkt að óska eftir samtali við bréfritara og Grímshúsfélagið um framtíðaráform.
5.Álagning fjallskila, Dalsmynni - fyrirspurn
1806183
Framlagt bréf Umboðsmanns Alþingis ásamt drögum að svari til embættisins vegna álagðra fjallskilagjalda á jörðina Dalsmynni á árunum 2015 og 2016. Sveitarstjóra falið að ganga frá svarbréfi til embættis Umboðsmanns Alþingis samkvæmt fyrirliggjandi drögum.
6.Golfklúbbur Borgarness - kynning á starfsemi
1807079
Fulltrúar Golfklúbbs Borgarness mættu til fundarins og fóru yfir starf klúbbsins og fjárhagslega stöðu hans.
7.Þriggja fasa rafmagn á Mýrum
1809007
Fulltrúi Atvinnuvega - og nýsköpunarráðuneytisins, Ingvi Már Pálsson, mætti til fundarins vegna umræðu um möguleika á hröðun lagningu þriggja fasa rafmagns á Mýrunum. Í máli hans kom fram mikill vilji ráðherra til að flýta framkvæmdum eins og mögulegt er í ljósi þeirra stöðu sem uppi er á svæðinu. Byggðarráð samþykkti að stofna stýrihóp utan um verkefnið í samvinnu við Atvinnuvega - og nýsköpunarráðuneytið. Að þessum stýrihóp koma fulltrúar sveitarfélagsins, ríkisins, Búnaðarfélags Mýramanna og annarra hagsmunaaðila. Byggðarráð leggur áherslu á að fullur kraftur verði settur í þetta verkefni og skoðuð verði möguleg samlegðaráhrif verkefnisins,m.a. vegna fyrirsjánalegrar lagningu ljósleiðara í sveitarfélaginu.
8.Heimasíða og kynningarmál
1801073
Ný heimasíða Borgarbyggðar. Ingibjörg Guðmundsdóttir mannauðsstjóri kynnti stöðu verkefnisins og drög að nýrri heimasíðu.
9.Samþykkt um stjórn Borgarbyggðar - endurskoðun
1808212
Rætt um hugmyndir að breytingum á samþykktum um stjórn Borgarbyggðar sem snúa að nefndaskipan. Byggðarráð samþykkti að óska eftir minnisblaði frá sviðsstjórum um ábendingar þeirra varðandi nefndaskipan. Markmiðið með endurskoðun á samþykktum er að minnka álag, auka skilvirkni í afgreiðslum og að tryggja að öll verkefni fái nauðsynlega umfjöllun hjá nefndum sveitarfélagsins.
10.Íbúðir á Varmalandi - tilboð
1705092
Framlagður tölvupóstur, dags. 31. ágúst 2018, frá Inga Tryggvasyni lögmanni varðandi frágang á sölu á fjórum íbúðum á Varmalandi sem seldar höfðu verið til Lava-hotel Varmaland ehf, kt. 560616-0740. Byggðarráð samþykkir að Varmaland ehf, kt. 620518-0260, yfirtaki áður samþykkt kauptilboð Lava-hotel Varmaland ehf, kt. 560616-0740 á áðurnefndum fjórum íbúðum. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samstarfi við Inga Tryggvason lögmann.
11.Tilkynning um fasteignamat 2019
1809004
Framlögð tilkynning Þjóðskrár Íslands um fasteignamat 2019. Þar kemur fram að hækkun í Borgarbyggð er 11,7% á fasteignir en 9,1% á land.
12.Ljósleiðari í Borgarbyggð - útboð
1809010
Framlögð til kynningar útboðsgögn vegna útboðs Ríkiskaupa f.h. Ljósleiðara Borgarbyggðar. Tilboð verða opnuð þann 9. október n.k. Byggðarráð lýsti ánægju sinni með þennan áfanga í þessu stóra verkefni.
13.Bílakaup v. íþrótta - og tómstundastarfs
1809016
Framlagt erindi UMSB, dags. 4. sept. 2018, um kaup á bifreið til nota í íþrótta - og tómstundastarfi. Byggðarráð ræddi erindið og samþykkti að kanna betur ýmis atriði sem tengjast því og að nauðsynlegt sé að kortleggja þörf fyrir akstur í sveitarfélaginu. Ákveðið að visa erindinu til fræðslunefndar.
14.Umsókn um styrk og ósk um samstarfssamning
1809017
Framlagt bréf Skógræktarfélags Borgarfjarðar dags. 20. ágúst 2018 þar sem óskað er eftir styrk og viðræðum um samstarfssamning. Byggðarráð vísaði erindi vegna styrkumsóknar vísað til fjárhagsáætlunar. Sveitarstjóra var falið að undirbúa fund með fulltrúum skógræktarfélagsins.
Fundi slitið - kl. 12:10.