Vinnuhópur um Staðardagskrá 21
Dagskrá
1.Kosning formanns
1309021
Björg Gunnarsdóttir, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi setur þennan fyrsta fund í vinnuhópi um staðardagskrá 21 og óskar eftir tilnefningum um formann.
Hulda Hrönn Sigurðardóttir var kosin formaður vinnuhópsins.
2.Erindisbréf fyrir vinnuhópinn
1309022
Erindisbréf fyrir vinnuhópinn lagt fram.
Farið var yfir erindisbréf vinnuhópsins. Vinnuhópurinn stefnir að því að leggja fram nýja skýrslu og verkefnaáætlun fyrir árið 2014 um mánaðarmótin október/nóvember áður en fjárhagsáætlun fer til sveitarstjórnar til fyrstu umræðu.
3.Staðardagskrárstarf sveitarfélaga
1309023
Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi kynnir staðardagskrárstarf sveitarfélaga.
4.Umhverfisstefna Borgarbyggðar
1309024
Lögð fram umhverfisstefna sveitarfélagsins til kynningar.
Rætt var um einstaka liði umhverfisstefnunar og hvað þyrfti að gera til að ná settum markmiðum.
5.Staðardagskráskýrsla Borgarbyggðar
1309025
Staðardagskrárskýrsla Borgarbyggðar lögð fram auk verkefnalista.
Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi kynnir framlagða skýrslu auk vinnu við verkefnalista.
Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi kynnir framlagða skýrslu auk vinnu við verkefnalista.
Vinnuhópurinn ræddi form staðardagskrárskýrslunnar og kynningarmál.
6.Vinnuáætlun fyrir næsta fund
1309026
Lögð fram drög að vinnuáætlun fyrir næsta fund.
Ákveðið að fundir vinnuhópsins verði 10., 17. september og 8., 15., 22., 29. október kl. 13.
Fundi slitið - kl. 15:00.