Skipulag
Skipulagsfulltrúi starfar á grundvelli skipulagslaga nr. 123/2010, skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og samþykkt sveitarstjórnar um úrvinnslu og afgreiðslu. Skipulagsfulltrúi heldur utan um skipulagsmál sveitarfélagsins, er starfsmaður skipulags- og byggingarnefndar og heldur afgreiðslufundi skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar.
Starfssvið skipulagsfulltrúa er skilgreint í II. kafla skipulagslaga en helstu skipulagsverkefni eru breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins, ný deiliskipulög, breytingar á eldri deiliskipulögum, framkvæmdir í sveitarfélaginu, grenndarkynningar byggingarleyfa og skráning landeigna.
Skipulagsvinna er byggð á markmiðum skipulagslaga, landsskipulagsstefnu og svæðisskipulags þar sem það á við.
Viðtalstímar skipulagsfulltrúa eru tilteknir á forsíðu.
- Endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar
- Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar
- Skipulagsauglýsingar á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar
- Skipulagslögin og -reglugerð
- Stjórnartíðindi og B-deild