• Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022, Stafholtsveggir II í Borgarbyggð.
• Deiliskipulag, Stafholtsveggir II í Borgarbyggð
Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022
Breytt landnotkun við Stafholtsveggi II í Borgarbyggð, landnotkunarreitur fyrir verslun- og þjónustu S11.
Deiliskipulag Stafholtsveggir II
Deiliskipulagið tekur til 5,7 ha svæðis og innan þess eru skilgreindar lóðir undir þjónustubyggingar og svefnskála fyrir ferðamenn. Aðkoma er af Borgarfjarðarbraut (50) um núverandi heimreið, sameiginleg með Stafholtsveggjum I og Bjargarási.
Tillögurnar voru auglýstar frá 21. júní til 3. ágúst 2021.
Athugasemdir bárust frá hagsmunaaðilum. Brugðist var við þeim eða þeim send umsögn.
Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins. Deiliskipulagstillagan hefur verið send til Skipulagsstofnunar og tekur gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögunar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til þjónustuvers Borgarbyggðar á Bjarnabraut 8, Borgarnesi eða skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar