Frístundarbyggð Galtarholts 2
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 8. september 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar Galtarholts 2 í Borgarbyggð.
Deiliskipulagsbreytingin tekur til fjölgunar frístundahúsa og þéttingu byggðar. Bæta á aðstöðu innan svæðis með gerð 9 holu golfvallar með tilheyrandi þjónustu, uppbyggingu golfbílavegakerfis, fyrirhugað þjónustuhús o.fl. Er leiksvæðum fækkað um tvö. Aðkoma að lóðum er um Laxholtsveg (5307) og Stóra-Fjallsveg (5350) frá Þjóðveginum. Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Ofangreind skipulagsáætlun er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 15. september til og með 28. október 2022. Ef óskað er eftir nánari kynningu á áætluninni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við auglýsta áætlunin og er frestur til að skila inn athugasemdum til 28. október 2022. Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.
Borgarbyggð, 15. september 2022
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar.