Deiliskipulag sumarbústaðalanda í Selási í landi Ánabrekku við ósa Langár
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 9. september 2021 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi sumarbústaðalönd í Selási í landi Ánabrekku við ósa Langár, í Borgarbyggð.
Deiliskipulagið tekur til 12 frístundalóða innan frístundasvæðis F20. Svæðið er stækkað úr 7,88 ha í 8,95 ha. Aðkoma að lóðum verður skipt í tvennt í stað einnar aðkomuleiðar eins og var áður. Tillagan samræmist aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Ofangreind skipulagsáætlun er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 20. október til og með 3. desember 2021. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til 3. desember 2021. Athugasemdum skal skila skriflega í þjónustuver Borgarbyggðar, Bjarnarbraut 8, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulagsfulltrui@borgarbyggd.is eða thjonustuver@borgarbyggd.is
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.
Borgarbyggð, 20. október 2021
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar