Skallagrímsgarður
Skallagrímsgarður er skrúðgarður í Skallagrímsdal í Borgarnesi.
Ungmennafélagið Skallagrímur og Kvenfélag Borgarness stóðu í upphafi að framkvæmdum í garðinum með fulltingi hreppsnefndar Borgarneshrepps í kringum 1930.
Þegar fram í sótti hætti ungmennafélagið afskiptum af garðinum og tók kvenfélagið alfarið við honum um 1938.
Kvenfélagið sá um garðinn af miklum myndarskap í mörg ár og er garðurinn nú fallegur skrúðgarður með stórum trjám og fjölbreytt blómskrúð.
Fyrir nokkrum árum afhenti Kvenfélagið sveitarfélaginu garðinn til eignar og hefur sveitarfélagið séð um rekstur og framkvæmdir þar síðan.
Í garðinum er haugur Skallagríms Kveldúlfssonar og listaverkið Óðinshrafninn sem er eftir Ásmund Sveinsson.