roofing

Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar um úttektar-appið.

Úttektir (app – leiðbeiningar)

Frá 1. janúar 2019 skulu byggingarstjórar framkvæma áfangaúttektir og skila niðurstöðum þeirra í byggingargátt. Hægt er að skila upplýsingunum með Úttektaforriti Mannvirkjastofnunar eða öðru sambærilegu forriti sem fengið hefur samþykki Mannvirkjastofnunar.

Byggingarstjórar skulu tilkynna fyrirhugaðar áfangaúttektir með a.m.k. 4 klst. fyrirvara.

Fyrir byggingarstjóra vegna eigin úttekta

Leið 1 – Smáfforritið ONESYSTEMS

Fyrir Apple kerfi, einungis IPad (eins og er), skal nota úttektarapp OneSystems.

  • Senda skal inn umsókn um aðgang að smáforritinu (appinu) í gegnum þjónustugátt sveitarfélagsins.
  • Farið inn á heimasíðu Borgarbyggðar.
  • Smellið á þjónustugátt efst hægra megin á forsíðunni.
  • Innskráning með rafrænum skilríkjum/Íslykli.
  • Efst í hægra horni er smellt á Umsóknir.
  • Farið í kafla 09 – Byggingarstjóri -App fyrir úttektir – umsókn um aðgang að OneApp.
  • Fyllið út viðeigandi upplýsingar og sendið umsókn.Þá er hægt að fara í AppStore og sækja OneApp3.

Byggingarstjóri sér hvaða mál hann er skráður á hjá embættinu og getur skráð úttektir á þau mál.

Leið 2 – Smáforritið MVS Byggingar úttekt

Fyrir Android kerfi (eins og er), skal nota úttektarapp frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Uppfylla þarf eftirfarandi fyrir stofnun notanda og notkun á úttektarforritinu:

  • Hafa handtækt snjallsíma eða spjaldtölvu með Android stýrikerfi
  • Eiga aðgang hjá island.is, þ.e. Íslykil eða vera með rafræn skilríki á símaEiga aðgang hjá Google, þ.e. gmail reikning fyrir aðgang að Playstore hjá Google
  • Byggingarstjóri stofnar sig sem notanda á https://www.minarsidur.mvs.is með rafrænum skilríkum.
  • Farið er inn í PlayStore og smáforritinu „MVS Byggingar Úttekt“ er hlaðið niður. Gæta skal þess að a.m.k. 20 Mb sé til staðar í innri geymslu tækisins. Til að hægt sé að hlaða smáforritinu niður er nauðsynlegt að vera innskráður sem notandi hjá Google í gegnum gmail netfang.

Hafa skal samband við embættið til að fá staðfest að byggingarmál sé komið inn í gáttina og tilbúið fyrir úttektir byggingarstjóra.