Þjónusta við eldri borgara í Borgarbyggð
Félagsstarf
Forstöðumaður: Guðleif Andrésdóttir. Sími: 437-2215
Netfang: felagsstarf@borgarbyggd.is
Félagsstarf aldraðra er til húsa að Borgarbraut 65a í Borgarnesi er opið kl. 12.oo - 16.oo alla virka daga frá byrjun september til júníloka og þar fer fram fjölbreytt starf; handavinna, spilamennska og ýmis námskeið.
Leiðbeinendur í félagsstarfi eru þær Edda Soffía Karlsdóttir, Margrét Ingadóttir og Þóra Þorkelsdóttir.
Virka daga er hægt að fá heitan mat í félagsstarfi. Þeir sem ekki eru í fastri áskrift þurfa að panta matinn fyrirfram.
Félag eldri borgara í Borgarfjarðardölum stendur fyrir vikulegri starfsemi fyrir eldri borgara í Félagsheimilinu Brún á miðvikudögum.
Félög eldri borgara
Félag eldri borgarar í Borgarnesi og nágrenni. Form. Guðrún María Harðardóttir.
Félag eldri borgara í Borgarfjarðardölum. Formaður félagsins er Edda Magnúsdóttir, Hóli í Hvítársíðu.
Félagsleg heimaþjónusta
Heimilishjálp er veitt öldruðum, öryrkjum og vegna tímabundinna veikinda eða erfiðra félagslegra aðstæðna. Umfang þjónustunnar fer eftir mati og þörfum hverju sinni.
Hér er hægt að nálgast reglur um félagslega heimaþjónustu og einnig reglur um endurgreiðslur fyrir heimaþjónustu.
Sótt er um hjá félagsmálastjóra, s: 433-7100
Þjónustuíbúðir fyrir aldraða
Þjónustuíbúðir fyrir aldraða eru á Borgarbraut 65a og í Ánahlíð í Borgarnesi.
Heimsendur matur
Matur er sendur heim í hádeginu í Borgarnesi alla daga ársins. Reynt er að veita þessa þjónustu líka í dreifbýlinu.
Mötuneyti
Á Borgarbraut 65a er boðið upp á hádegismat alla virka daga.
Vaktþjónusta í þjónustuíbúðum
Í íbúðum aldraðra á Borgarbraut 65a er starfsmaður alla virka daga sem ásamt fleiru sinnir smáviðvikum fyrir íbúa í þjónustuíbúðum á Borgarbraut og við Ánahlíð. Dvalarheimilið sinnir neyðarvakt fyrir íbúðir á Borgarbraut 65a á kvöldin og um helgar.
Félagsleg ráðgjöf.
Eldri borgarar hafa aðgang að félagslegri ráðgjöf hjá félagsþjónustu sveitarfélagsins og geta leitað þangað eftir aðstoð varðandi réttindi sín eða mögulega þjónustu. Eins er hægt að fá upplýsingar um mögulega þjónustu hjá heimahjúkrun. Þjónusta við eldri borgara er í stöðugri þróun og markmiðið alltaf að mæta þörfum þeirra er þurfa á henni að halda. Eldri borgarar eru hvattir til að koma með ábendingar og kanna möguleika á aðstoð hvort sem er varðandi almenna þjónustu eða þeirra eigin aðstöðu.