Kleppjárnsreykir skólasvæði – nýtt deiliskipulag

Kleppjárnsreykir skólasvæði – nýtt deiliskipulag
Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir skólasvæði að Kleppjárnsreykjum í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 10. október sl. að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir skólasvæði og opið svæði á Kleppjárnsreykjum í Borgarbyggð.

Tillagan tekur til svæðis fyrir þjónustustofnanir (Þ1) og opið svæði (O4). Innan þjónustusvæðisins er grunnskóli, leikskóli, íþróttahús og sundlaug. Innan opna svæðisins er Kleppjárnsreykjarhver og íbúðalóðir ásamt útivista- og kennslusvæði. Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 19.10.23 til og með 02.12.23. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í Skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.

Borgarbyggð, 19. október 2023

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar