Langárbyrgi veiðihús við Langá – Lýsing á deiliskipulagi

Langárbyrgi veiðihús við Langá – Lýsing á deiliskipulagi
Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing á deiliskipulagi Langárbyrgi veiðihús við Langá í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 10. október 2023 að auglýsa lýsingu á deiliskipulagi fyrir Langárbyrgi veiðihús í landi Jarðlangsstaða í Borgarbyggð.

Lýsingin tekur til 13.688,3 m2 lóð Langárbyrgis veiðihúss (L177317) á Jarðlangsstöðum. Á lóðinni er 711 m2 veiðihús sem fyrirhugað er að stækka í 1000 m2. Aðkomuvegur er út frá Stangarholtsvegi (536) og gert ráð fyrir að það verði óbreytt. Áætlunin samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Ofangreind skipulagslýsing er auglýst í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 16.10.23 til og með 30.10.23. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í Skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á vinnslutillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.

Borgarbyggð, 16. október 2023

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar