Breyting á aðalskipulagi – Verslunar- og þjónustusvæði í landi Signýjarstaða.

Breyting á aðalskipulagi – Verslunar- og þjónustusvæði í landi Signýjarstaða.
Í samræmi við 2. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst vinnslutillaga að breytingu aðalskipulags – breyting á verslunar- og þjónustusvæði í landi Signýjarstaða.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. október 2023 að auglýsa vinnslutillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna breytingar á verslunar- og þjónustusvæði í landi Signýjarstaða í Borgarbyggð.

Vinnslutillagan tekur til breytingar á aðalskipulagi með það að markmiði að breyta landnotkun fyrir lóðirnar Hrísmóar 2, 4 og 5 og Ystu-Móar 1, 2, 3 og 4 í frístundabyggð Signýjarstaða. Lóðarhafar óska eftir að hluta landsins verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði til þess að vera með gistiþjónustu.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 16.10.23 til og með 30.10.23. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við vinnslutillöguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í Skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á vinnslutillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.

Borgarbyggð, 16. október 2023

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar