Breyting aðal- og deiliskipulags fyrir Hótel Hamar – skipulagslýsing

Breyting aðal- og deiliskipulags fyrir Hótel Hamar – skipulagslýsing
Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 40. gr. sömu laga er hér með auglýst skipulagslýsing að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 og breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð hótels Hamars.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 14. september að auglýsa lýsingu að breytingu á aðalskipulagi fyrir Hótel Hamar í Borgarbyggð og breytingu á deiliskipulagi fyrir hótel við golfvöllinn í Borgarnesi frá árinu 2004.

Lýsingin tekur til reitar BL3 í aðalskipulaginu, Hamar – opið svæði til sérstakra nota, verslun og þjónusta. Breyting er unnin á skilmálum, stærðum og byggingarmagni á reitnum. Skipulagssvæði deiliskipulagsins er stækkað en fyrirhugað er að fjölga gistirýmum og byggja 8 ný frístundahús. Aðkoma að svæðinu er um afleggjara frá þjóðvegi 1 sem liggur að Hamarslandi.

Skipulagslýsing

Ofangreind skipulagslýsing er auglýst í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 21. september til og með 5. október 2023. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna og er frestur til að skila inn ábendingum til 5. október en þeim skal skila í Skiplagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.

Borgarbyggð, 21. september 2023.

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar