Frístundasvæði í landi Eskiholts

Frístundasvæði í landi Eskiholts
Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 8. júní 2023 að auglýsa lýsingu að breytingu á aðalskipulagi á frístundasvæði í landi Eskiholts II.

Fyrirhugað er að breyta landnotkun á afmörkuðu svæði í landi Eskiholts II úr frístundabyggð (F37) í verslun og þjónustu. Misræmi er í skráningu á stærð tveggja frístundasvæða í landi Eskiholts, F37 og F38, í aðalskipulaginu. Í breytingunni verður stærð þeirra leiðrétt og heiti leiðrétt. Nú er frístundabyggðin F37 skráð 153,3 ha að stærð en af því færu 52 ha yfir í verslun- og þjónustu. Um er að ræða breytingu á landnotkun á átta gistihúsalóðum á frístundasvæðinu. Aðkoma að svæðinu er frá Þjóvegi 1.

Ofangreind skipulagslýsing er aðgengileg inn á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 22. júní til og með 17. júlí 2023. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna og er frestur til að skila inn ábendingum til 17. júlí 2023. Ábendingum skal skila inn í Skipulagsgátt eða skriflega í þjónustuver Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 28. júní 2023.