Kleppjárnsreykir skólasvæði

Kleppjárnsreykir skólasvæði
Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing á nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 3. mars 2023 að auglýsa lýsingu á nýju deiliskipulagi fyrir skólasvæði á Kleppjárnsreykjum í Borgarbyggð.

Skipulagslýsingin tekur til skóla og íþróttamannvirkja á svæðinu og græns svæðis við skólann. Svæðið er 14ha að stærð og skilgreint í aðalskipulagi sem svæði fyrir þjónustustofnanir (Þ1) og opið svæði (O4). Aðkoma er um Borgarfjarðarbraut (nr. 20) og Kleppjárnsbraut. Deiliskipulagið verður í samræmi við Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022.

Ofangreind skipulagslýsing er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 14. mars til og með 28. mars 2023. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna og er frestur til að skila inn ábendingum til 28. mars 2023. Ábendingum skal skila skriflega í þjónustuver Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 14. mars 2023.