Stuttárbotnar Húsafelli 3

Stuttárbotnar Húsafelli 3
Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst lýsing að breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar svk. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 3. febrúar að auglýsa lýsingu á nýju deiliskipulagi fyrir Stuttárbotna Húsafelli 3 í Borgarbyggð.

Deiliskipulagssvæðið er um 111 ha að stærð og er þegar að mestu byggt. Innan svæðis eru 150 frístundahús, hótel, verslun, sundlaug, golfvöllur, tjaldsvæði, flugskýli, íbúðarhús, virkjanir o.fl. Aðkoma er af Hálsasveitarvegi (518).

Ofangreind skipulagslýsing er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 21. febrúar til og með 9. mars 2023. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna og er frestur til að skila inn ábendingum til 9. mars 2023. Ábendingum skal skila skriflega í þjónustuver Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 21. febrúar 2023.