Breyting á legu þjóðvegar við Borgarnes

Breyting á legu þjóðvegar við Borgarnes
Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst lýsing að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 9. febrúar 2023 að auglýsa lýsingu að breytingu á aðalskipulagi fyrir breytingu á legu Þjóðvegar við Borgarnes.

Fyrirhugað er að breyta legu þjóðvegar nr.1 við þéttbýlið í Borgarnesi og stækkun á íbúðarsvæði Í12, þar sem áætlað er að koma fyrir um 20-25 íbúðum. Þéttbýlisuppdráttur verður stækkaður til samræmis við breytta legu þjóðvegar. Horft verður á tvo meginvalkosti, leið 5 einvörðungu og blöndu af leiðum 3 og 5.

Ofangreind skipulagslýsing er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 21. febrúar til og með 9. mars 2023. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna og er frestur til að skila inn ábendingum til 9. mars 2023. Ábendingum skal skila skriflega í þjónustuver Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 21. febrúar 2023.