Hraunsnef

Hraunsnef
Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. október 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 fyrir breytingu á landnotkun í Borgarbyggð.

Tilgangur breytingar er að bæta við nýju frístundasvæði (F147) í landi Hraunsnefs alls 56,5ha að stærð. Svæðið sem stækkunin nær til er skilgreint sem landbúnaðarland í dag. Um er að ræða framhald á ferli aðalskipulagsbreytingar í landi Hraunsnefs.

Ofangreind skipulagsáætlun er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 8. febrúar til og með 23. mars 2023. Ef óskað er nánari kynningu á áætluninni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við áætlunina og er frestur til að skila inn athugasemdum til 23. mars 2023. Athugasemdum skal skila skriflega í þjónustuver Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 8. febrúar 2023.