Frístundabyggð í Eskiholtsskógi – Nýtt deiliskipulag

Frístundabyggð í Eskiholtsskógi – Nýtt deiliskipulag

Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing fyrir frístundabyggð í Eskiholtsskógi í Borgarbyggð.

Eskiholtsskógur í Borgarbyggð

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 03.11.2023 að auglýsa lýsingu að nýju deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í Eskiholtsskógi í Borgarbyggð.

Lýsingin tekur til 65 ha svæðis innan frístundabyggðar F37 sem er í allt 153,3 ha að stærð. Gert er ráð fyrir um 50 frístundalóðum á bilinu 0,33-1 ha að stærð. Lögð verður áhersla á að vernda votlendi og leggja byggð inn í rjóður til að raska birkikjarri sem minnst. Aðkoma að lóðum er frá Hringvegi um Laxholtsveg. Áætlunin samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 13.11.2023 til og með 27.11.2023 og er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar undir skipulagsauglýsingar.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í Skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 13. nóvember, 2023.