Þéttbýlisuppdráttur Borgarness, svæði BL3 og O16 – Tillaga að breytingu aðalskipulags

Þéttbýlisuppdráttur Borgarness, svæði BL3 og O16 – Tillaga að breytingu aðalskipulags

Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Þéttbýlisuppdráttur Borgarness, svæði BL3 og O16 (Hamar)

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 9. nóvember 2023 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir svæði BL3 (Hamar) og O16 (Golfvöllur) í landi Hamars í Borgarbyggð.

Tillagan tekur til svæði BL3 (Hamar) og O16 (Golfvöllur) í landi Hamars. Tilgangur breytingar er að stækka svæði BL3 um 2 ha og minnka O16 um 3,3 ha. Nýtingarhlutfall á BL3 er aukið um 0,04 eða úr 0,04 í 0,08.

Breyting á aðalskipulagi

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is) frá 14. desember 2023 til og með 25. janúar 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 14. desember, 2023.