Deiliskipulag íbúðabyggðar í landi Bjargs – nýtt deiliskipulag

Deiliskipulag íbúðabyggðar í landi Bjargs – nýtt deiliskipulag

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýstar tillögur að breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 9. nóvember 2023 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð í landi Bjargs á svæði Í12.

Deiliskipulagssvæðið er innan þéttbýlismarka og er að hluta skilgreint sem íbúðarbyggð og óbyggt svæði að hluta í Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Á svæðinu er gert ráð fyrir allt að 20 lóðum fyrir einbýlis- og fjölbýlishús á einni til tveimur hæðum. Aðalskipulagsbreyting er gerð samhliða.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is) frá 27. desember 2023 til og með 14. febrúar 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Auglýsing mun birtast í Bændablaðinu 11. janúar 2024. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 27. desember 2023.