Frístundabyggð Signýjarstaða – Aðalskipulagsbreyting

Frístundabyggð Signýjarstaða – Aðalskipulagsbreyting

Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi í Borgarbyggð.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 11. janúar 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir frístundabyggð á Signýjarstöðum í Borgarbyggð.

Tillagan tekur til breyttrar landnotkunar á afmörkuðu svæði í landi Signýjarstaða úr frístundabyggð (F108) í verslun og þjónustu (S8). Frístundabyggðin er 48,4 ha en af því færu 5 ha yfir í verslun- og þjónustu og væru þá 43,4 ha eftir breytinguna. Um er að ræða breytingu á landnotkun fyrir lóðirnar Hrísmóar 2, 4 og 5 og Ystu-Móar 1, 2, 3 og 4 í frístundabyggð Signýjarstaða. Aðkoma að svæðinu er frá Hálsasveitarvegi (518) og inn á veg Hrísmóa.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 245/2023) frá 21. mars til og með 5. maí 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 21. mars, 2024.